Mánudagur 1. júní
Fasteignaleitin
Skráð 1. júní 2026

Jöfursbás 3c

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
98.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
92.900.000 kr.
Fermetraverð
942.191 kr./m2
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2541053
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer íbúðar
13
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suður-svalir
Upphitun
gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
NÝJAR ÍBÚÐIR VIÐ HAFIÐ - Sýni samdægurs. Bókaðu skoðun í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir einstaklega vandaðar og vel hannaðar íbúðir við Jöfursbás 3c, Reykjavík - íbúð 0213 er 4ja herbergja 98,6fm. íbúð á annari hæð í lokuðu stigahúsi, þar af geymsla 12,2fm í kjallara. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu. Íbúðin er skemmtilega hönnuð með þremur svefnherbergjum. Vestursvalir út frá stofu með útsýni til sjávar.  Íbúðin er með aukinni lofthæð yfir 280cm

Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Flísar á votrýmum og vandað parket á aðalflötum íbúðar er frá Harðviðarval og eldhústæki frá AEG.


* sjávarútsýni
* aukin lofthæð 
* sérsmíðaðar innréttingar sem ná upp í loft.
* vönduð gólfefni
* gólfhiti
* gólfsíðir gluggar
* quartz steinn á borðum og undirlímdir vaskar
* snjóbræðslukerfi í göngustígum með fallegri næturlýsingu 
* spennandi umhverfisskipulag í nýju hverfi

Nánari lýsing íbúðar

Forstofa með  fataskáp 
Eldhús opið inn í stofu með fallegri innréttingu sem nær til lofts.  Innrétting er sérsmíðuð frá VOKE með quartz stein á borðplötu.
Stofa með góðum gólfsíðum gluggum og útgengt á svalir til vesturs með sjávarútsýni.
Baðherbergi flísalagt bæði gólf og hluti veggja.  Vönduð innrétting með quartz borðplötu.  Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði.
Hjónaherbergið er rúmgott með vönduðum fataskáp sem nær til lofts
Barnaherbergin eru tvö, annað með fataskáp.
Geymsla á sér geymslugangi í kjallara hússins

Hjóla- og vagnageymsla í sameign
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar

Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Allar upplýsingar á: www.gufunesid.is 

Íbúðirnar í húsinu eru samtals 24 talsins, mjög fjölbreyttar 2-4 herbergja. Stærðir frá 52,3 fm-171,4  m2  


// VILDARKORT LINDAR // sem allir viðskiptavinir Lindar fá afhent við kaupsamning
Við vekjum sérstaka athygli á því að allir kaupendur hjá Lind fasteignasölu fá Vildarkort Lindar sem veitir 30% afslátt hjá samstarfsaðilum okkar, en þeir eru:
Parki (gólfefni), Z brautir og gluggatjöld, Húsgagnahöllin, Betra bak, Dorma, Flügger litir, S. Helgason steinsmiðja, Vídd og Húsasmiðjan.

Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
 
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni. Strönd þar sem hægt er að fara á í fargufu og sæþotuleiga.


Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
2541053
Byggingarefni
steypt
Númer eignar
PO13
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jöfursbás 3C íb 309
Jöfursbás 3C íb 309
112 Reykjavík
76.4 m2
Fjölbýlishús
312
987 þ.kr./m2
75.400.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3C íb 308 - HMS HLUTDLÁN
Jöfursbás 3C íb 308 - HMS HLUTDLÁN
112 Reykjavík
55.3 m2
Fjölbýlishús
211
1040 þ.kr./m2
57.500.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3C íb 213
Jöfursbás 3C íb 213
112 Reykjavík
98.6 m2
Fjölbýlishús
413
942 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Austurhólar 2
Skoða eignina Austurhólar 2
Austurhólar 2
800 Selfoss
69.1 m2
Fjölbýlishús
211
722 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin