SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*EINSTAKT LÚXUSEINBÝLISHÚS VIÐ GOLFVÖLLINN Í ALTAONA SPORTS & WELLNESS RESORT*
STÓR EINKALÓÐ – EINKASUNDLAUG – GOLF – NÁTTÚRA – LÚXUSLÍFSSTÍLL
Hér er um að ræða eina glæsilegustu eignina á Altaona golfsvæðinu í Murcia, einstakt arkitektahannað lúxuseinbýlishús þar sem innblásturinn kemur frá golfíþróttinni sjálfri – jafnvægi, nákvæmni og glæsilegri hönnun.
Húsið stendur á stórri einkalóð við golfvöllinn og býður upp á algjört næði, stórkostlegt útsýni yfir gróið landslag og einstaka tengingu við náttúruna. Húsið er hannað fyrir þá sem vilja sameina lúxus, friðsæld og framúrskarandi lífsgæði á einu eftirsóttasta golfsvæði Spánar.
ALLAR UPPLÝSINGAR VEITA:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali
+354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali
+34 615 112 869. berta@spanareignir.is.
FRÁBÆRT SKIPULAGHúsin eru byggt á tveimur hæðum og eru sérhönnuð fyrir hvern kaupanda. Grunnteikningar liggja fyrir en hægt er að aðlaga skipulag, stærð og útfærslu að óskum kaupanda.
Húsin einkennast af:
Björtu og rúmgóðu opnu alrými með stofu, borðstofu og glæsilegu eldhúsi
Gólfsíðum gluggum sem tengja saman inni- og útirými
Rúmgóðum svefnherbergjum með sérbaðherbergjum, 4-7 svefnherbergi + 4-7 baðherbergi
Vönduðu efnisvali þar sem viður, náttúrusteinn og marmari skapa hlýlegt og tímalaust yfirbragð
Mjög góðri nýtingu rýmis og einstakri birtu
Möguleika á að sérsníða húsið að þörfum kaupanda
ÚTISVÆÐI OG LÍFSSTÍLLÚtisvæðin eru hönnuð til að njóta spænska loftslagsins allt árið.
Eignin býður meðal annars upp á:
Einkasundlaug
Rúmgóðar verandir
Stóra einkalóð
Fallega hannaðan garð
Einkabílastæði
Frábært útsýni yfir golfvöllinn og náttúruna
Einstakt næði
Hér renna hús og náttúra saman í eina heild þar sem mörkin milli inni- og útirýma verða nánast ósýnileg.
Möguleiki er að aðlaða hönnun eftir óskum hvers og eins.
VERÐ
4 svefnherbergi • 4 baðherbergi + gestasnyrting • 585 fm
Verð frá 1.991.000 evrur (288.600.000ISK, gengi 1 evra = 145ISK) + kostnaður við kaupin.
SÉRHÖNNUÐ VILLAHér er ekki um að ræða staðlað hús heldur sérhannaða eign þar sem hvert hús er byggt í nánu samstarfi við kaupanda. Uppgefnir fermetrar eru því leiðbeinandi og endanleg stærð, skipulag og verð ráðast af þeirri hönnun sem valin er. Sýningrahús eru til staðar og gefa hugmynd að endanlegri útfærslu.
ALTAONA SPORTS & WELLNESS RESORTAltaona er eitt af eftirsóttustu golf- og heilsusvæðum Spánar og sameinar golf, íþróttir, náttúru og vellíðan á einstakan hátt.
Á svæðinu er meðal annars:
18 holu golfvöllur sem verður stækkaður í 27 holur
Tennis- og padelvellir
Göngu- og hjólaleiðir
Veitingastaðir og þjónusta
WOW Longevity Centre með áherslu á heilsu og lífsgæði
Lokað og vaktað svæði með öryggisgæslu allan sólarhringinn
Staðsetningin er einstaklega góð:
10 mínútur frá Corvera-flugvelli
45–50 mínútur frá Alicante-flugvelli
15 mínútur frá miðborg Murcia
20 mínútur frá fallegum Miðjarðarhafsströndum
ÖRUGG KAUP OG REYNSLAVið höfum selt fasteignir á Spáni frá árinu 2001.✔ Löggiltur fasteignasali með réttindi á Íslandi og Spáni.
✔ Aðstoð við fjármögnun hjá spænskum bönkum.
✔ Aðstoð við skoðunarferðir og þátttaka í kostnaði ef af kaupum verður.
✔ Örugg og fagleg þjónusta frá fyrstu skoðun þar til lyklar eru afhentir.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKOSTNAÐUR VIÐ KAUP
10% IVA (spænskur virðisaukaskattur)
Um 3% annar kostnaður vegna kaupanna
Samtals um 13%
EIGINLEIKAR: Nýbygging, Sérhönnuð lúxusvilla, Stór einkalóð, Einkasundlaug, Golfútsýni, Stórar verandir, Hágæða efnisval, Einkabílastæði, Golf, Heilsuresort, Öryggisgæsla
SVÆÐI: Murcia, Altaona Sports & Wellness Resort, Costa Cálida, Spánn,