Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Stapasíða 13i - Vel skipulögð 4ra herbergja endaraðhúsaíbúð með bílskúr á vinsælum stað í Síðuhverfi - stærð 166,2 m²
Eignin skiptist með eftirtölum hætti,
Neðri hæð 68,1 m²: Forstofa, þvottahús, snyrting, geymsla undir stigapalli, eldhús og stofa.
Efri hæð 76,0 m²: Sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi (voru fjögur áður) og baðherbergi.
Bílskúr 22,1 m²
Forstofa er með gráum flísum á gólfi og gólfhita.
Þvottahús er við hliðina á forstofunni með gráum flísum á gólfi, gólfhita og hvítri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Eldhús, sprautulökkuð innrétting með stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél. Granít er á gólfi, bekk og á milli skápa. Rúmgóður borðkrókur.
Stofa er með dökku parketi á gólfi, gluggum til tveggja átta og hurð út á steypta verönd (2020) með heitum potti/skel og útisturtu.
Sjónvarpshol er með parketi á gólfi og þar eru loft tekin upp. Þrefaldur skápur og gluggi til vesturs.
Svefnherbergin eru þrjú en voru fjögur áður, búið er að opna á milli tveggja barnaherbergja en einfalt er að breyta því til baka þar sem hurð er enn til staðar. Parket er á gólfum í svefnherbergjum og fataskápar í tveimur. Úr hjónaherbergi er gengið út á svalir til norðurs sem eru yfir bílskúrnum og úr öðru barnaherberginu er gengið út á steyptar suður svalir.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2026. Flísar eru á gólfi og veggjum, eikar lituð innrétting og speglaskápur, upphengt wc, handklæðaofn og walk-in sturta. Blöndunartæki eru svört.
Snyrting er á neðri hæðinni með gráum flísum á gólfi og hluta veggja, gólfhita, upphengdu wc, hvítri innréttingu og innfelldri lýsingu í lofti.
Geymslurými er undir stigapalli.
Bílskúr er skráður skv. HMS 22,1 m² að stærð og er innangengt í hann í forstofunni. Þar eru gráar flísar á gólfum, bekkur með vask, skápar og rafdrifin innkeyrsluhurð.
Annað
- Gólfhiti er í forstofu, þvottahúsi, snyrtingu og á baðherbergi.
- Rúmgóð steypt verönd með steyptum skjólveggjum og hitalögnum í hluta. Heiturpottur/skel og útsturta.
- Gluggar á efri hæð að norðan voru endurnýjaðir árið 2021.
- Varmaskiptir.
- Þak var endurnýjað árið 2025 af EM smíði ehf. Skipt var um það timbur sem þurfti, nýr pappi og nýtt járn.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.