Föstudagur 24. júlí
Fasteignaleitin
Skráð 8. jan. 2026

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
144 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
89.100.000 kr.
Fermetraverð
618.750 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Svalir
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
103010126
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
rúmgóðar svalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*NÝTT Í SÖLU*-*FLOTT ÍBÚÐ MEÐ STÓRUM SVÖLUM Á FRÁBÆRUM STAÐ*

Glæsileg og vel hönnuð ný endaíbúð  með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum + gestasnyrtingu á Las Colinas golfsvæðinu. Stór stofa og borðstofa í opnu rými, vel tengt eldhúsi. Stórar svalir.  Auk þess er aðgegi að glæsilegum sér sundlaugargarði með góðri sameiginlegri aðstöðu, sér stæði í bílakjallara og geymsla. 

Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante.
Lengi hefur verið beðið eftir íbúðum á þessum vinsæla stað og aðeins örfár eftir.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is, 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is.  0034 615 112 869,


Lýsing:
Þessar frábæru íbúðir eru í Limonero,  einum vinsælasta staðnum á Las Colinas. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi og gestasnyrting, rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Vandaðar innréttingar.

Fallegur sameiginlegur sundlaugargarður.  Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi og úrvals veitingastöðum.  Á svæðinu er glæsileg þjónustumiðstöð með líkasmsræktaraðstöðu, fleiri veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Algjör lúxus fyrir vandláta. Ennfremur hafa íbúar Las Colinas aðgang að glæsilegum strandklúbbi við ströndina í Dehesa de Campoamor.

Loftkæling/hitun fylgir.
Auk þess rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél.
Góður kaupauki fylgir með, hafið samband og kynnið ykkur málið.

Margir frábærir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d.  La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Dehesa de Campoamor og ca. 10 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða flotta eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu
og vinum.

Verð miðað við gengi 1 Evra=145ISK.
Íbúð með 3 svefnh. + 2 baðh. + gestasnyrting
Verð 615.000 Evrum (ISK 89.100.000) + kostn. við kaupin
Íbúð 144 fm
Svalir 28 fm.
Samtals 172 sérafnotafm.
Auk þess sér bílastæði í bílakjallara ásamt sér geymslu.

Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar húsgögnum gegn aukagjaldi.

Sameiginlegur sundlaugargarður, falleg græn svæði og sameiginleg aðstaða skapa rólegt og fágað andrúmsloft – kjörið fyrir þá sem leggja áherslu á lífsgæði, næði og gæði.
Íbúðirnar eru hannaðar af ADORAS Atelier, arkitektastofu sem sérhæfir sig í nútímalegri, sjálfbærri og hagnýtri byggingarlist, þar sem lýsing, efnisval og landslag skipa lykilhlutverk. Innanhússhönnun er í höndum Silviu Bellot, stofnanda Mediterranean Nomad í Jávea, sem sameinar miðjarðarhafsstíl, náttúruleg efni og hlýja tóna í tímalausri og notalegri heild.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.

Eiginleikar: air con, golf, sameiginlegur sundlaugargarður, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
103010126
Fasteignanúmer
103010126

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eskihlíð 10A
3D Sýn
Hleðslustöð
Skoða eignina Eskihlíð 10A
Eskihlíð 10A
105 Reykjavík
135.3 m2
Fjölbýlishús
624
775 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Austurberg 16
Bílskúr
Skoða eignina Austurberg 16
Austurberg 16
111 Reykjavík
153.9 m2
Fjölbýlishús
413
487 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Efstaleiti 11
Bílskúr
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Efstaleiti 11
Efstaleiti 11
103 Reykjavík
135.3 m2
Fjölbýlishús
312
982 þ.kr./m2
132.900.000 kr.
Skoða eignina Lómasalir 6
Bílastæði
Skoða eignina Lómasalir 6
Lómasalir 6
201 Kópavogur
122.1 m2
Fjölbýlishús
413
777 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin