Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:
Vel skipulögð, rúmgóð og björt 106,7 fm. þriggja herbergja íbúð á 1. hæð við Súðarvog 9A, 104 Reykavík.
Íbúðin er með gólfhita, gólfsíða glugga inn í stofu, sér þvottahús og vandaðar sérsmíðaðar innréttingar frá Voke III með frábært skápapláss. Sér stæði í bílageymslu með rafhleðslustöð fylgir með íbúðinni.
Fallegt harðparket er á gólfum íbúðarinnar að undanskildu baðherbergi og þvottahúsi, þar eru flísar á gólfi.
Heildarstærð er 106,7 fm, þar af er íbúð 98,4 fm. og geymsla 8,3 fm. Smelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3D
Bókaðu skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.isNánari lýsing:Anddyri er með fataskápa meðfram einum vegg, mikið og gott skápapláss.
Eldhús, stofa og borðstofa er opnu sameiginlegu alrými, í eldhúsinu er vönduð og flott eldhúsinnrétting með eyju. Spanhelluborð í eyju með kolasíuháf þar fyrir ofan. Gott skápa-, skúffu- og vinnupláss. Bökunarofn og combi ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kælir með frystir. Borðplötur úr harðpressuðum viðarplötum. Út frá stofu er gengið út á svalir með timburklædda verönd. Baðherbergið er með flísar á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi, baðinnrétting og handklæðaofn. Þvottahús er með flísar á gólfi. Innrétting undir þvottavél og þurrkara og Skolvask. Hjónaherbergið er rúmgott 13,5 fm. með fataskápum. Barnaherbergi/skrifstofa er með rennihurðar inn í herbergið, stærð er 7,4 fm.
Sér geymsla: Í sameign er merkt 0020
Sér stæði í bílageymslu er merkt B30
Við hönnun hússins er tekið mið af því að lágmarka viðhald. Húsið er einangrað að utan, klætt með fallegri álklæðningu og þá eru gluggar og hurðar ál-tré. Gert er ráð fyrir lagnaleið að hverju stæði fyrir möguleika á rafhleðslustöð
Almennt um húsin: Súðarvogur 9 og 11 eru fjölbýlishús með þremur stigahúsum með lyftu; samtals 46 íbúðir. Inngangar eru frá Súðarvogi og Drómundarvogi og um inngarð. Geymslur í kjallara fylgja hverri íbúð. Stæði í bílakjallara fylgja flestum íbúðum. Vagna- og hjólageymslur eru í sameign.
Arkitektar og aðalhönnuðir: Tendra arkitektar ehf.
Verkfræðihönnun: VSÓ Ráðgjöf ehf.
Hljóðráðgjöf: Myrra hönnunarstofa ehf.
Brunahönnun: Lota ehf.
Byggingaraðili: Viðskiptavit ehf.
Umhverfið: Húsin eru staðsett í Vogabyggð í Reykjavík sem er einstakt og nýstárlegt hverfi. Vogabyggð er nýtt hverfi í uppbyggingu þar sem eldra iðnaðarhverfi víkur fyrir nútímalegri byggð fjölbýlishúsa. Hverfið er frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í umhverfi sem býður bæði upp á borgarbrag og í senn sterka tengingu við náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Þá er Laugardalurinn innan seilingar.
Nánari upplýsingar: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali í síma
661-6056, gulli@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef um lögaðila er að ræða) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.