Hraunhamar fasteignasala og Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is kynna: Glæsilegt og vandað 282,5 fm einbýli með innb. bílskúr á besta stað í Áslandinu Hfj. Frábær staðsetning í hverfinu, stutt í skóla, gönguleiðir ofl. Suður garður/verönd með heitum potti. Möguleiki á aukaíbúð.
EIgnin skiptist m.a. þannig: Gengið er inn í húsið beint af götu á neðri hæðina.
Forstofa er björt og falleg með skáp, innangengt þaðan í rúmgóðan flísalagðann bílskúrinn, gangur/hol,
tvö stór og björt samliggjandi herbergi, útgengt á hellulagða verönd, vandað baðherbergi með fínni sturtuaðstöðu, flísar í hólf og gólf. Rúmgott vel innréttað
þvottaherbergi, af gangi er innangengt líka í bílskúrinn. Frá holi er síðan breiður og góður steyptur stigi á milli hæða. Fallegur stór loft gluggi er yfir stiganum. Komið er inn í stórt alrými, þar sem
eldhús,stofa og borðstofa eru til staðar.
Óvenju mikil lofthæð þar, glæsileg rúmgóð stofa og borðstofa, gas arinn í stofu. Bjart eldhúsið er rúmgott, með eyju og góðum tækjum og innréttingum. Fallegir gluggar og stór gólfsíður
útsýnisgluggi í stofu. Útgengt á
pallinn frá stofu.
Svefnálma: Rúmgottt
hjónaherbergi með skáp/fataherbergi
tvö góð barnaherbergi með fataskápum. Gott
vinnuherbergi/talva með rennihurðum, innangengt í stofurnar. Vandaður
glerveggur er í svefnálmu. Fallegt
vandað baðherbergi með baðkari og fínni sturtuaðstöðu, vönduð innrétting, flísar í hólf og gólf,
útgengt á pallinn. (pottinn)
Innfelld lýsingi og hiti í gólfum. Parket og flísar á gólfum. Sérsmíðaðar innréttingar.Lóðin er glæsileg og vel gróin, snýr til suðurs.Stórt og mikið bílplan fyrir framan húsið og til hliðar við það. Hiti í bílaplani fyrir framan.
Bílskúr er rúmgóður flísalagður, 3ja fasa rafmagn.
Heitur pottur á rúmgóðri suður veröndinni. Steyptir skjólveggir.Nýlega er búið að endurnýja þakið á húsinu, gert á vandaðan máta.
Þetta er mjög áhugaverð eign til að skoða frekar á þessum vinsæla stað í Hafnarfirði.
Nánari upplýsingar veita:
Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s.698-2603, hlynur@hraunhamar.is
Helgi Jón Harðarson sölustj. helgi@hraunhamar.is
Skoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.