Fallegt og vel skipulagt enda-raðhús á pöllum með bílskúr við Réttarbakka 25, Reykjavík.Húsið er innst í botnlanga.
* Frábær fjölskyldueign
* Góður garður og viðarpallur með skjólveggjum.
* 4 svefnherbergi
* Bílskúr skráður 22 m2
* Rúmgott bílastæði fyrir framan hús
* 2008 var þak yfirfarið og þakdúkur endurnýjaður
* 2024 var parket pússað á aðalhæðum ( stofur og eldhús )Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 849-1921 eða helen@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð samkv. FÍ er 211,20 m2.
Eignin skiptist í anddyri, gestasnyrtingu, hol, eldhús, stofu, svalir, svefnherbergisgang, 4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.Anddyri er flísalagt með fatahengi.
Gestasnyrting er flísalögð með salerni og handlaug með skáp.
Hol er með parket á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með fallegri upprunalegri eldhúsinnréttingu og björtum borðkrók með þak-glugga. Í eldhúsi eru efri og neðri skápar, flísar á milli og eldavél.
Gengið er upp í
stofuna sem er rúmgóð, björt og með góða lofthæð. Parket á gólfi. Útgengt út á
svalir til vesturs.
Gengið er niður í
svefnherbergisgang, parket á gólfi og fataskápur. Útgengt út á
sólpall með skjólveggjum og í gróinn
garð.
Svefnherbergi 1 er rúmgott, með dúk á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi.
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi og fataskáp.
Gengið er niður á neðsta pall og er þar rúmgott
hol, nýtt sem skrifstofa í dag. Parket á gólfi.
Svefnherbergi 4 er rúmgott, nýtt sem sjónvarpshol í dag.
Baðherbergi er dúklagt með salerni, baðkari og sérsturtu. Endurnýjuð innrétting 2024 með handlaug og skúffum. Hár innbyggður skápur milli baðkars og sturtu.
Þvottahús er rúmgott með máluðu gólfi, tengjum fyrir þvottavél og þurrkara, vinnuborð með skolvask og skápum á vegg.
Geymsla er inn af þvottahúsi.
Bílskúrinn er skráður 22 m2 samkv. FÍ. með innkeyrsluhurð sem er einnig manngeng. Skúrinn er upphitaður með heitu/köldu vatni.
Hellulagt upphitað
bílaplan er fyrir framan húsið ásamt steyptum kerjum með runnum. Þá er Hellulögð
verönd þar fyrir hliðan.
Góð staðsetning miðsvæðis á Höfuðborgarsvæðinu og stutt í stofnbrautir. Stutt að sækja alla helstu þjónustu í Mjóddina og göngufæri í Breiðholtsskóla sem og þrjá leikskóla í hverfinu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.