LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega fallega 109 m2 fjögurra herbergja endaíbúð á efstu hæð við Berjarima 2 . Íbúð með stæði í lokaðri bílageymslu í góðu fjölbýlishúsi í Grafarvoginum. Frábær staðsetning í barnvænu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál íbúðarrýmis 99,5 m2 , auk 9,5 m2 geymslu..
Íbúðin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, bjarta stofu/borðstofu, eldhús, sér þvottahús og útgengi á rúmgóðar svalirNánari lýsing:Forstofa með fataskápum og flísum á gólfi.
Rúmgóð stofa og borðstofa með gluggum til vesturs.
Eldhúsið er hálf opið inn í stofu og með innréttingu með efri og neðri skápum með flísum á milli skápa, ofn í vinnuhæð, helluborð með viftu yfir, gert er ráð fyrir uppþvottavé og ísskáp í innréttingu, borðkrókur og útgengi út á rúmgóðar svalir.
Tvö barnaherbergi annað með gluggum í vestur en hitt með gluggum í suður.
Hjónaherbergi með góðum fataskáp og endurnýjuðum gluggu í suður.
Baðherbergi með innréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu, flísar í hólf og gólf.
Sér þvottahús er innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sér geymsla ( 9,5 m2 ) í kjallara ásamt stæði í lokaðri bílageymslu.
Bílageymsla í lokuðum bílakjallara.
Þvottaaðstaða er í bílageymslunni ásamt afnotarétti af dekkjageymslu.
Helstu viðhaldsframkvæmdir hússins
2024 - Skipt um alla glugga á framhlið hússins
2025 - Húsið múr viðgert á framhliðTvö rafhleðslubílastæði á lóð.Nýlegt parket á öllu nema forstofu, eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi en þar eru flísar. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is