Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, bjarta og vel skipulagða 157,4 fermetra íbúð á 2. hæð með tvennum stórum svölum í nýlega viðgerðu og góðu fjölbýlishúsi með lyftu á eftirstóttum stað við Ásakór í Kópavogi.
Húsið að utan er nýlega viðgert og málað auk þess sem skipta var um þá glugga í húsinu sem þurfti. Fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2026 er kr. 99.050.000.-
Íbúðin skiptist í forstofu, þvottaherbergi, gang, þrjú barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi og mjög stórt og bjart alrými með stofum og eldhúsi, en þaðan er útgengi á stórar svalir til suðurs og aðrar stórar svalir til vesturs.
Lýsing eignar:
Forstofa, mjög rúmgóð, flísalögð og með fataskápum með rennihurðum.
Þvottaherbergi, innaf forstofu er rúmgott, flísalagt og með góðri innréttingu með vinnuborði og vaski.
Gangur, parketlagður.
Barnaherbergi I, parketlagt og rúmgott með fataskápum.
Barnaherbergi II, parketlagt og rúmgott með fataskápum.
Hjónaherbergi, stórt, parketlagt og með miklum fataskápum.
Barnaherbergi III, parketlagt og rúmgott.
Baðherbergi, stórt, flísalagt gólf og veggir, innrétting, handklæðaofn og bæði baðkar og flísalögð sturta.
Eldhús, opið við stofur, parketlagt og með fallegri innréttingu með tengi fyrir uppþvottavél og stórri eyju með góðum hirslum og helluborði með hangandi háfi yfir.
Stofur, stórar, parketlagðar og bjartar með gluggum í þrjár áttir og útgengi á tvennar stórar svalir. Svalir til suðurs eru með fallegu útsýni upp að Heiðmörkinni. Svalir til vesturs eru yfirbyggðar að hluta, stórar og mjög skjólsælar.
Í kjallara hússins eru:
Sérgeymsla, sem er 7,8 fermetrar að stærð.
Sameiginleg hjólageymsla, með útgengi á lóð.
Húsið að utan er nýlega viðgert og málað og er í góðu ástandi þannig að ekki eru fyrirhugaðar neinar framkvæmdir við eignina.
Sameign er snyrtileg og vel umgengin.
Lóðin er fullfrágengin með fjölda bílastæða þar sem er búið að setja upp rafhleðslustöðvar fyrir bíla.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð og stutt er í leikskóla, skóla, íþróttasvæði, verslanir og þjónustu auk fallegra útivistarsvæða.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is