SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGÓÐ EINBÝLISHÚS Í EKTA SPÆNSKUM BÆ*
Falleg, rúmgóð og vel skipulögð einbýlishús á tveimur hæðum í fallegum spænskum bæ. Góð verönd út frá stofu, sérgarður með einkasundlaug og útisturtu. Um 60 mín akstur frá Alicante. Stutt á fallega strönd. Fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni. Göngufæri á notalega veitingastaði í bænum. Fallega gróið umhverfi með göngu-og hjólaleiðum. Húsin eru vel skipulögð með góðu alrými, þremur svefnherbergjum, og þremur baðherbergjum.
Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali,adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir. GSM 777 4277
Nánari lýsing:Neðri hæð: gott eldhús, með góðri tengingu við stofu og borðstofu í rúmgóðu alrými ásamt svefnherbergi. Baðherbergi.
Efri hæð: tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Góðar svalir og er þaðan gengið upp á þakveröndina.
Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar og grilla. Einkasundlaug. Kjörin aðstaða til að njóta útiveru í góðu veðri allt árið.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, í rólegu og fallegu umhverfi. Stutt á ströndina með skemmtilegu strandlífi, og miðbæ San Pedro del Pinatar, bátahöfnina, leirböðin og fleira skemmtilegt.
San Pedro del Pinatar er vinsæll spænskur strandbær með sál og sjarma.
FRÁBÆRT VERÐ, frá: 479.900 Evrur. (ISK 69.500.000,- miðað við gengi 1E=145ISK) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.
Húsið er 174 fm
Verönd 90 fm.
Sólverönd 48 fm.
Sundlaug 13 fm.
Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum og rafmagnstækjum gegn viðbótarkostnaði. þannig að allt verði tilbúið þegar flutt er inn.
Afhending í júní 2026.
Hagstæð fjármögnun í boði úr spænskum bönkum, sem auðveldar kaupin.Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: einkasundlaug, þakverönd, strönd, air con,
Svæði: Costa Blanca, San Pedro del Pinatar,