Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallegt og vandað 5-6 herbergja 224,0 fermetra raðhús í raðhúsalengju á frábærum og fjölskylduvænum stað við Funafold 32 í Reykjavík. Í húsinu eru 4 svefnherbergi, gestasnyrting, baðherbergi, stór stofa/borðstofa, sjónvarpsstofa, eldhús, þvottaherbergi og tvöfaldur bílskúr. Húsið er afar sjarmerandi og með góðum gluggum til suðurs inn í bakgarð í stofu. Útgengi frá stofu í skjólgóðan bakgarð og frá hjónaherbergi á svalir til suðurs með fallegu útsýni út á sundin.
Gengið í skjólgóðan bakgarð til suðurs frá stofu þar sem tyrfð flöt tekur við viðar verönd með heitum potti. Fallegur gróður á lóðarmörkum. Svalir til suðurs inn í bakgarð frá efri hæð með afar fallegu útsýni. Hellulögð stétt er fyrir framan hús og bílskúr með snjóbræðslu. Beð með fallegum gróðri eru við inngang hússins.
Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi í Foldahverfi í Reykjavík þar sem stutt er í grunnskóla og leikskóla. Frábærar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni, m.a. við Grafarvoginn, Elliðaárvoginn, meðfram Grafarvogi upp að Geldingarnesi og víðar. Stutt er í helstu stofnæðar þar sem hverfið er afar vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins.
Nánari lýsing: Neðri hæð: Forstofa: Er rúmgóð, með flísum á gólfi, aukinni lofthæð og góðum skápum. Gestasnyrting: Er staðsett við forstofu. Flísar á gólfi og veggjum. Upphengt salerni og vaskur. Þvottaherbergi: Er rúmgott með flísum á gólfi og innréttingu með góðu skápaplássi. Mikil lofthæð, vinnuborð og vaskur er í þvottaherbergi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Bílskúr: Er tvöfaldur, 35,7 fermetrar, með tveimur innkeyrsluhurðum. Innangengt frá forstofu. Flísar á gólfi og rúmgott geymsluloft yfir hluta. Vaskur og heitt/kalt vatn. Stofa: Gengið niður nokkur þrep frá forstofu niður í stofu/eldhús. Stofa er stór, með parketi á gólfi og gluggum til suðurs. Stofa rúmar mjög vel setustofu og borðstofu. Fallegur arinn í stofu og útgengi í bakgarð hússins. Eldhús: Með flísum á gólfi og fallegri viðar eldhúsinnréttingu. Bakaraofn og örbylgjuofn, tengi fyrir uppþvottavél og keramik helluborð. Stæði fyrir tvöfaldan kæliskáp og borðkrókur. Gluggi til suðurs. Sjónvarpsrými: Er staðsett inn af stofu við hlið eldhús. Parket á gólfi.
Efri hæð: Gangur: Með parketi á gólfi, mikilli lofthæð og gluggum til norðurs sem hleypa inn skemmtilegri birtu. Hjónaherbergi: Er rúmgott, með parketi á gólfi og góðu skápaplássi. Aukin lofthæð og gluggar til suðurs. Útgengi á svalir frá hjónaherbergi. Svalir: Snúa til suðurs inn í bakgarð hússins. Afar fallegt útsýni er frá svölum yfir Bryggjuhverfið í Grafarvogi og út á sundin. Svefnherbergi II: Er rúmgott með parketi á gólfi, aukinni lofthæð og gluggum til suðurs. Svefnherbergi III: Með parketi á gólfi, aukinni lofthæð, skápum og glugga til suðurs. Svefnherbergi IV: Með parketi á gólfi, aukinni lofthæð, skápum og glugga til suðurs.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.