Stórglæsileg lúxusíbúð að Lundi 17 á eftirsóttum stað í Kópavogi.Glæsileg endaíbúð með sérinngangi, fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, yfirbyggðum svölum með sjávarútsýni og sólpalli með nuddpotti. Tvö stæði í bílakjallara fylgja.
Eignin er 229,5 fm samkvæmt HMS og skiptist í efri hæð 131,5 fm, neðri hæð 90,3 fm og geymslu í sameign 7,7 fm. Fasteignamat næsta árs er 180.250.000 kr.
EIGN SEM ER ÞESS VIRÐI AÐ SKOÐA!- Endaíbúð með sérinngangi
- Tvö bílastæði í bílakjallara
- Hiti í gólfum
- Fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi
- Yfirbyggðar svalir og sólpallur með nuddpotti
- Innréttingar og fataskápar í stíl frá Brúnás
- Byggt af Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars hf. (BYGG)
- Gólfsíðir gluggar sem gera íbúðina einstaklega bjartaNánari upplýsingar veita:Tinna Bryde Lgf. í síma
660-5532 eða
tinna@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í síma
775-4000 eða
palli@palssonfasteignasala.is Efri hæð:Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Stofan er rúmgóð og björt með gólfsíðum gluggum sem hleypa fallegri birtu inn og parket á gólfi. Stofan myndar opið rými með eldhúsi og útgengt er á rúmgóðar yfirbyggðar svalir.
Eldhúsið myndar opið rými með stofu. Gott skápapláss með vönduðum innréttingum frá Brúnás, ofn í vinnuhæð, helluborð og Elica vifta.
Hjónaherbergi er rúmgott með parket á gólfi og fataherbergi.
Svefnherbergi eru rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergið er rúmgott með baðkari. Flísalagt með góðri innréttingu með útdraganlegum skúffum, skáp fyrir ofan og spegli.
Þvottahús er rúmgott, með góðri innréttingu, skolvaski og flísum á gólfi.
Stigi niður er með glerhandriði.
Neðri hæð:Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og með sturtu. Rúmgóð innrétting með útdraganlegum skúffum, skáp fyrir ofan og spegli.
Svefnherbergi 3 er með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi 4 er með fataskáp og parket á gólfi.
Sjónvarphol er rúmgott með parketi á gólfi.
Útgengt úr sjónvarpsholi á lokaðan pall með nuddpotti.
Geymsla á neðri hæð er rúmgóð. Einnig er lokað geymslurými undir stiga.
Með eigninni fylgja tvö stæði í bílakjallara merkt B06 og B07 en einnig er sameiginlegt þvottastæði í bílakjallara.
Sérgeymsla er líka í sameign ásamt tveimur sameiginlegum hjóla og vagnageymslum.
Góð aðkoma er að húsinu og næg bílastæði.
Staðsetning:Vinsæl staðsetning á besta stað í Kópavogi þar sem stutt er í alla þjónustu. Verslanir, veitingastaðir, kaffihús og apótek í göngufjarlægð ásamt glæsilegu útivistarsvæði, göngu- og hjólaleiðum í Fossvogsdal og nágrenni.
Staðsetningin er sérstaklega fjölskylduvæn, hægt er að ganga / hjóla í skóla og leikskóla án þess að fara yfir götu en göngu- og hjólastígar liggja frá íbúð beint í gegnum Fossvogsdalinn.
www.eignavakt.is www.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 450 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.