** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr við Stórakrika 46 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 234,8 m2, þar af raðhús 207,8 m2 og bílskúr 27 m2. Eignin skiptist í fjögur rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi, hol/vinnuhol, fjölskyldurými/sjónvarpshol, forstofu, eldhús, borðstofu, stofu og bílskúr. Vinsæl staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, verslun og alla helstu þjónustu. Mjög rúmgóð svefnherbergi og stofur. Gott skipulag. Fallegar innréttingar og gólfefni. Svalir með fallegu útsýni. Bakgarður með tveimur timburveröndum, geymsluskúr og grasi. Steypt bílaplan og timburverönd í suðurátt. Búið er að setja upp þriggja fasa bílahleðslustöð sem fylgir.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:Efri hæð:Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp. Úr forstofu er innangengt í
bílskúr.
Baðherbergi 1 er flísalagt baðherbergi með innréttingu og sturtu.
Stofa er í opnu og björtu rými með innfelldri lýsingu og parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á stórar
svalir með glæsilegu útsýni
Eldhús er með flísum á gólfi og innréttingu með eyju. Í innréttingu eru ísskápur og frystiskápur sem fylgja, uppþvottavél sem fylgir, spanhelluborð og blástursofn. Úr eldhúsi er gengið út á
timburverönd í suðurátt.
Svefnherbergi 1 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Bílskúr er með hillum, skápum og flísum á gólfi. Nýlega var skipt um bílskúrshurð og sett upp þriggja fasa bílahleðslustöð.
Neðri hæð:Komið er inn í
hol/vinnuhol með parketi á gólfi. Úr holi er gengið inn í stórt
fjölskyldurými/sjónvarpshol með parketi á gólfi.
Geymslurými er undir stiga.
Þvottahús er með innréttingu og flísum á gólfi. Gert er ráð fyrir þvottavélum og þurrkara í vinnuhæð.
Baðherbergi 2 er flísalagt baðherbergi með innréttingu, baðkari og sturtu.
Svefnherbergi 2 er með fataskáp og parketi á gólfi. Úr svefnherbergi er útgengi á
timburverönd og
bakgarð.Svefnherbergi 3 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 4 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Verð kr. 152.500.000,-