Sunnudagur 16. ágúst
Fasteignaleitin
Skráð 6. ágúst 2026

Goðavík 15

RaðhúsSuðurland/Selfoss-800
100 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
699.000 kr./m2
Brunabótamat
56.900.000 kr.
Byggt 2024
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
25343163
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Fasteignasalan Heimaland kynnir Goðavík 15, 800 Selfossi.
Um er að ræða 100fm, vel skipulagða íbúð í nýju raðhúsi á Selfossi. 
Húsið er staðsett í einu af nýjustu hverfum Selfossbæjar, Jórvíkurhverfi. Húsið er timburhús, klætt að utan með báruáli og sléttri ál klæðningu, gluggar eru ál/tré gluggar, vindskeiðar og undirklæðning úr málaðri furu. Gólfhiti er í húsinu, steyptur í plötu, veggir og loft klædd með gipsi, heilspartlað og málað. Harðparket er á gólfum en flísar á votrýmum, innihurðar eru yfirfelldar hvítar. 
Lóðin er þökulögð en mulningur er í bílaplan. Steypt ruslatunnskýli fylgir. Bakgarðurinn snýr í suður og þar er gert ráð fyrir sólpalli og ídráttarrör hafa verið lögð fyrir heitum potti.

Nánari lýsing eignar:   
Andyrri er flísalagt með rúmgóðum fataskáp.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með fataskápum og parketi á gólfi. 
Baðherbergi með upphengdu salerni, gólfsturtu og innréttingu, flísar á gólif. Inn af baðherbergi er þvottahús með innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. 
Alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu.
Eldhús er með rúmgóðri innréttingu með eyju. Í innréttingu er innbyggður ísskápur og uppþvottavél, spanhelluborð og bakarofn.
Borðstofa/stofa er björt og rúmgóð, parket á gólfum og útgengt út á suðurlóð. 

Vel heppnuð og snyrtileg eign sem vert er að skoða nánar. 
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. 


*****ATH ALLT AÐ 20% SELJENDALÁN Í BOÐI****         

      
Allar nánari upplýsingar veitir
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, snorri@heimaland.is
Elísa Dagmar Björgvinsdóttir, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 868-7938, elisa@heimaland.is 


Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is, Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan Heimaland ehf.
http://heimaland.is/

Myndir (21)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vindakór 10-12
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Vindakór 10-12
Vindakór 10-12
203 Kópavogur
116.8 m2
Fjölbýlishús
413
758 þ.kr./m2
88.500.000 kr.
Skoða eignina Stigahlíð 10
Efsta hæð
Opið hús:20. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Stigahlíð 10
Stigahlíð 10
105 Reykjavík
83 m2
Fjölbýlishús
312
842 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Garðastræti 9
Efsta hæð
Opið hús:18. ágúst kl 17:00-17:20
Skoða eignina Garðastræti 9
Garðastræti 9
101 Reykjavík
81.7 m2
Fjölbýlishús
321
819 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Skoða eignina Flúðasel 61
Opið hús:20. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Flúðasel 61
Flúðasel 61
109 Reykjavík
96.1 m2
Fjölbýlishús
312
602 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin