Hannes Steindórsson kynnir: Mjög mikið endurnýjaða fimm herbergja hæð í fjórbýli með bílskúr og bílastæði við Drápuhlíð 6.
Þak og rennur, hús að utan múrviðgert og endursteinað, vatnslagnir, skólplagnir, rafmagn, dren ofl. endurnýjað á síðastliðnum 15 árum.
Eignin er á annarri hæð, gengið upp snyrtilegan stiga. Búið að breyta bílskúr í íbúð.
Forstofa/Hol: Parketlagt og rúmgott hol í miðju íbúðar með þremur skápum/geymslum.
Eldhús: Rúmgott eldhús með endurnýjaðri innréttingu með miklu skápaplássi eldunareyju sem hægt er að sitja við.
Borðstofa: Björt parketlögð borðstofa með útgengi út á svalir.
Stofa: Rúmgóð parketlögð stofa með stórum gluggum.
Svefnherbergi 1: Stórt svefnherbergi með miklu skápaplássi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott svefnherbergi með skápum.
Svefnherbergi 3: Rúmgott svefnherbergi með skápum.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með baðkari og sturtuaðstöðu.
Þvottahús: Sér þvottahús í sameign.
Geymsla: Sér geymsla í kjallara.
Bílskúr: 24,4 fm bílskúr sem búið er að breyta í íbúð og er í útleigu.
Bílastæði: Sér bílastæði fyrir framan bílskúr.
Allar upplýsingar veitir: Hannes Steindórsson s.699-5008 hannes@fastlind.is