Betri Stofan og Jason Kristinn Ólafsson, löggiltur fasteignasali með netfangið jason@betristofan.is kynna:
Eiríksgata 8, 101 Reykjavík.
Einstakt 244,3 fm fjölskylduhús í Þingholtunum. Byggt 1930 og mörg upprunaleg atriði eru enn til staðar í húsinu. Til dæmis svört „bakelit“ slökkvarar, innstungur, og hurðahúnar og „art deco“ hurðir á neðri hæð. Fjölskylduhús með 5-6 svefnherbergjum. Mikil lofthæð er í húsinu. Húsið er vel skipulagt með gott flæði, engir gangar. Húsið er á tveimur hæðum, og er hægt að nota það sem einbýlishús eða skipta því í þrjár einingar með því einu að loka völdum hurðum milli eininga á neðri hæð. Gengið er inn frá Eiríksgötu, og komið inn í forstofu með terrasso-gólfi. Farið er upp stiga á efri hæð.
Efri hæð:
Stór tvöföld stofa, sem snýr í suðaustur út í trjágarðinn, á efri hæðinni og er hægt að gera hana þrefalda; í framhaldi af stofunum er skrifstofa sem er hægt að sameina við stofurnar. Eldhús með útsýni til Hallgrímskirkju, og baðherbergi með baðkari, skápum úr ljósum viði og flísum. Salerni er nýlegt. Stórt svefnherbergi, með fataherbergi og innbyggðum viðarskápum frá 1960, tveimur gluggum, og fallegu útsýni yfir nærliggjandi garða. Einnig er útgangur á góðar svalir úr þessu herbergi.
Tvennar svalir eru á húsinu. Einar svalir eru „móttökusvalir“ yfir útidyrahurðinni að framan. Svalir númer tvö snúa í suður, út í einn af stærstu trjágörðum í Þingholtunum. Á þeim er hægt að sitja úti á sumarkvöldum.
Neðri hæð:
Eldhús, baðherbergi, þvottahús og þvottahús (áður kyndiherbergi). Það er notað í dag sem hobbýherbergi en gæti verið útleigueining, eða unglingaherbergi. Það er með sérinngangi. Þrír inngangar eru á neðri hæðinni, aðalinngangur, inngangur í hobbýherbergi og sérinngangur í íbúð.
Á neðri hæðinni er íbúðin með sérinngangi sem skiptist í eldhús, baðherbergi með terrasso-gólfi, nýlegu salerni og nýjum krönum, og tvö stór svefnherbergi.
Eitt herbergi með sérinngangi og einnig eitt aukaherbergi á neðri hæð, sem gengið er inn í úr forstofu. Íbúðin með sérinngangnum var á 20 ára tímabili notuð sem tannlæknastofa. Hægt er að opna alla hæðina á milli og hafa sem eina heild. Húsið er með eins konar rjáfri sem er hægt að opna ef vill. Það er hægt að nota það sem geymslu, en það er góð nýting á rýminu í húsinu, svo það hefur ekki verið þörf fyrir að nýta þann möguleika.
Það er innkeyrsla við húsið, og 20 m2 bílskúr í lélegu ástandi. Hann er er langt frá innkeyrslu og fremur nýtanlegur sem aukaherbergi, eða leigueining. Það er hægt að endurtengja hitann, leiðslur liggja í gegnum bílskúrinn. Það væri líka hægt að koma fyrir heitum potti með sömu vatnsleiðslum.
Þak var málað fyrir 9 árum en er gamalt. Gluggar (art deco-stíll) eru gamlir.
Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is og Páll Þórólfsson, pall@betristofan.is