Trausti fasteignasala kynnir Laugaborg vandað og glæsilegt nýtt lyftufjölbýli við Kirkjusand. Íbúðir er fjölbreyttar að skipulagi frá 2ja til 4ra herbergja á 3 – 6 hæðum. Skjólgóður inngarður og sameiginlegur þakgarður bjóða upp á skemmtilegar stundir utandyra og útsýni til fjalla og sjávar. Íbúðirnar bjóða upp á vandaðar innréttingar, gólfhita, svalir eða sérafnotareiti og sjálfstætt loftræstikerfi er í þeim öllum. Svalalokun, samkvæmt íslenskum stöðlum, er á öllum svölum í úthring hússins.
Hlekkur á ítarlegar upplýsingar er hér.
Bílakjallari undir húsinu er stór og rúmgóður og verða tæplega þúsund stæði og gott aðgengi að rafhleðslustöðvum. Íbúar hússins hafa aðgang að stæði í bílakjallara gegn hóflegu gjaldi.
115 íbúðir í íbúðakjarnanum á 3 til 6 hæðum og afhendast í 4 áföngum. Húsið er vel hannað þegar kemur að birtustigi og hverfist um skjólgóðan inngarð. Frábær staðsetning í nýju hverfi á Kirkjusandi, þar sem líflegur Laugardalurinn er í göngufæri með allt það sem hann hefur upp á að bjóða og örstutt í miðbæ Reykjavíkur.
Afhending á 1. áfanga júní/júlí 2025
NÁNARI LÝSING:
Laugaborg (íbúð 201) er glæsileg endaíbúð á 2. hæðForstofa er með fataskáp sem nær upp í loft.
Stofa/borðstofa er björt og ílöng með útgengi á góðar svalir með svalalokun.
Eldhús með fallegri sérsmíðaðri innréttingu með eldunareyju og quartz plötum á borðum. Span helluborð í eyju með innbyggðum gufugleypi. Bakaraofn með kjöthitamæli og sjálfhreinsibúnaði.
Svefnherbergi eru tvö, annað með fataskápum sem ná upp í loft.
Baðherbergi er með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Egger, quartz borðplötu og sturtu með Unidrain gólfrennupakka.
Þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfum og upphengdum innréttingum.
Geymsla íbúðar er 13,7 fm
(Myndir á vef eru dæmi um útlit eignar en endurspegla ekki alltaf nákvæmlega auglýsta eign).
Bókið skoðun eða fáið nánari upplýsingar hjá:Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Auðun Ólafsson lgf. í síma 894-1976 eða á netfanginu audun@trausti.is
Guðbjörg Sveinbjörnsdóttir lgf. í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Hallgrímur Hólmsteinsson lgf. í síma 896-6020 eða á netfanginu hallgrimur@trausti.is
Kristján Baldursson lgf. í síma 867-3040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is
Sólveig Regína Biard lgf. í síma 869-4879 eða á netfanginu solveig@trausti.is