ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Valbraut 10, 250 birt stærð 193.8 fm. Fjögurra svefnherberga hús á frábærum stað í Garðinum. Snyrtileg eign með fallegum garði. ca 1995 var byggt við húsið 15.9 fm sólhús sem tengir báða sólpalla eignarinnar. Vel um gengið og gott fjölskylduhús.
2026 var útbuin Studio-íbúð í enda bilskúrs með aðgengi inn að hlið. Framhluti bílskúrs er notaður sem geymsla og er aðgengileg gegnum bilskúrshurð. Heildar stærð bílskúrs er 49,4 fm.Nánari upplýsingar veitir: Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.Eignin skiptist í forstofu, eldhús sem tengir saman herbergjagang og stofu, rúmgóð stofa, inn af stofu er sólhús, frá eldhúsi eru fjögur herbergi, baðherbergi ásamt þvottahúsi með útgengni út á lóð
Forstofa flísalögð með skáp.
Eldhús með fallegri viðarinnréttingu. Gott vinnupláss og bjart rými
Stofa er mjög rúmgóð, hægt að loka inn í hana.
Sólstofa byggð ca 2005, með gólfhita og með hurðar út á sitthvora veröndina.
Barnarherbergi eru þrjú öll með skápum og gólf parketlagt
Hjónaherbergi er parketlagt og með skápum
Baðherbergi með viðarinnréttingu, salerni, flísalagðir veggir og gólf ásamt baðkari með sturtuþyli.
Studio-íbúð var útbúin í Janúar 2026 í enda bílskúrs og er í útleigu. Gangur, opið rýmis, eldhús og baðherbergi með sturtu.
Stórt hellulagt bílaplan. Lóðin umhverfis húsið er fullfrágenging á vandaðan máta, aflokuð skjólgóð verönd, hellulagður stígur meðfram austurhlíðinni og graslagt svæði fyrir aftan húsið þar er geymsluskúr á lóð.
Þetta er einstaklega vel staðsett eign í rólegu og fallegu umhverfi, skóli og íþróttamiðstöð í göngufæri. Töluverð uppbygging er í gangi á svæðinu og húsið stendur mjög nálægt nýbyggingarhverfi sveitafélagsins.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.