Fasteignasalan TORG kynnir: Björt og sjarmerandi 2ja-3ja herbergja íbúð á 2. hæð í þríbýli á besta stað miðsvæðis í Reykavík. Búið er að endurnýja alla glugga í íbúðinni. Allar upplýsingar veitir Dórothea fasteignasali s.898-3326 dorothea@fstorg.is
Eignin er skráð samkvæmt FMR samtals 51,6fm. Íbúðin er 50,2 fm og geymsla í kjallara 12,3 fm.Búið er að skipta um þakjárn á húsinu. Samþykkt yfirlýsing um að gluggar í íbúðum eru á kostnað hverrar íbúðar fyrir sig. Búið er að endurnýja glugga í öllum íbúðum. Eftir er að endurnýja glugga í geymslum í kjallara og einn glugga í sameign við stigagang.Sjá söluyfirlit hér:Nánari lýsing eignarinnar:Forstofa: Gengið er inn í sameiginlega forstofu frá porti á hlið hússins. Sameiginlegur stigagangur upp að íbúð.
Eldhús: Með upprunalegri innréttingu, lítil ofn upp á neðri innréttingu með tveimur hellum. Gluggi er við borðkrók. Dúkur á gólfi.
Svefnherbergi: Er inn af eldhúsi með upprunalegu timburgólfi.
Stofan: Stofa er björt og skiptist í tvö rými með tvöfaldri glerhurð þar sem möguleiki er á öðru svefnherbergi. Í dag er innra rýmið notað sem vinnurými, opinn fataskápur eftir heilum vegg. Upprunalegt timburgólf.
Baðherbergi: Er innaf vinnurými, með sturtuaðstöðu. Hvítur vaskur og salerni, tengi fyrir þurrkara. Málað gólf.
Kjallari: Gengið er í sérgeymslu í kjallara frá baklóð. Í kjallara er einnig sameiginlegt þvottahús.
Hér er um að ræða notanlega íbúð á besta stað miðsvæðis í höfuðborginni. Stutt er í flesta þjónustu sem og í góðar almenningssamgöngur.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Dórothea E. Jóhannsdóttir fasteignasali, sími 898-3326 og dorothea@fstorg.is.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. TORG fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.500,-
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um kr. 50.000.-
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900,- með vsk.