Fimmtudagur 22. október
Fasteignaleitin
Skráð 22. okt. 2026

Möðruvallastræti 10

EinbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
202.4 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
154.900.000 kr.
Fermetraverð
765.316 kr./m2
Fasteignamat
105.450.000 kr.
Brunabótamat
110.400.000 kr.
SS
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1938
Garður
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2149389
Landnúmer
148993
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sjá upptalningu endurbóta
Raflagnir
Sjá upptalningu endurbóta
Frárennslislagnir
Sjá upptalningu endurbóta
Gluggar / Gler
Sjá upptalningu endurbóta
Þak
Endurnýjað 2022
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Til norðurs
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
minniháttar ummerki um raka í vegg á baðherbergi í kjallara. * Eignin er ekki að fullu í samræmi við teikningar í kjallara.
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Fallegt og mikið endurnýjað einbýli við Möðruvallastræti á Akureyri.  Eignin skiptist í tvær hæðir og kjallara og hefur á síðustu 25 árum nánast allt verið tekið í gegn sem og lóðin í kring.  Húsið er samtals skráð 202,4 m² og var upphaflega byggt árið 1938 í fönkís stíl sem hæð og kjallari en árið 1958 var byggt ofan á húsið í modernískum stíl, sem setur skemmtilegan svip á húsið.  Húsið er vel staðsett á suður-brekkunni í þægilegu göngufæri frá sundlauginni og miðbænum.

Húsið skiptist þannig að á aðalhæð er forstofa, eldhús, borðstofa, stofa og baðhergi.  Á efri hæð eru fjögur herbergi og baðherbergi.  Í kjallara er þvottahús og tæknirými, forstofa, geymsla, eitt herbergi með eldhúskrók og baðherbergi innaf / studio.
Lóðin er sérstaklega skemmtileg.  Sunnan við húsið er hellulagt bílaplan með snjóbræðslu í og einnig er hellulagt við aðalinnganginn í húsið og upp með norðurhlið þess og þar er jafnframt snjóbræðsla (lokað kerfi).
Sunnan við húsið er timburverönd sem nær einnig vestur fyrir húsið og þar er heitur pottur, gufubað, útisturta og góður geymsluskúr og geymslurými.

Forstofa / aðalinngur er frá Möðruvallastrætinu við norðurhlið hússins.  Forstofan er með harðparketi á gólfi.  Góðir fataskápar eru á gangi innan við forstofuna.  Einnig inngangur beint inn í kjallarann á vesturhlið.
Eldhúsið er með harðparketi á gólfi og vandaðri sérsmíðaðri innréttingu úr spónlagðri hnotu og ljóstum kvartssteini á bekkjum.  Eldavél er stór gaseldavél með 7 hellum.
Borðstofa og stofa eru innaf eldhúsi og þar er harðparket á gólfum en hægt er að loka á milli borðstofu og stofu með rennihurð.  Úr stofunni er tvöföld hurð til suðurs út á verönd.
Baðherbergin í húsinu er þrjú, eitt á hverri hæð og hafa þau öll verið endurnýjuð á síðustu 25 árum, öll flísalögð, tvö með sturtu og eitt með baðkari.  Opnanlegir gluggar eru á þeim öllum og snyrtilegar innréttingar.
Herbergin eru fjögur á efri hæðinni á þeim öllum er parket og fataskápar eru í þremur þeirra.  Herbergið/studio íbúð í kjallaranum er með harðparketi og innaf því er eldhúskrókur og baðherbergi - hentar vel til útleigu.
Þvottahús og tæknirými er í kjallara og þar eru flísar á gólfi og ljós innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymslur eru þrjár innan íbúðar, allar undir stiga/tröppum.  Geymsluskúr og frekara geymslupláss er í garðinum.
Svalir eru til norðurs út af gangi efri hæðar og þaðan er skemmtilegt útsýni.

Annað
- Ljósleiðari er kominn inn og tengur.
- Gólfhiti er í allri aðalhæð sem og í kjallara.
- Allar innréttingar er frá Hyrnu (í dag Húsheild Hyrna)
- Stærri og sérhæfðari framkvæmdir við húsið hafa verið unnar af fagmönnum.
- Góðir útleigumöguleikar eru í kjallaranum - Menntaskólinn á Akureyri er aðeins steinsnar frá.

Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á húsinu af núverandi eigendum og hér fylgir upptalning frá seljanda.

2000–2004 – efri hæð og stofa
Á fyrstu árum eftir kaup var opnað út úr stofu og útbúinn sólpallur sunnan við húsið. Efsta hæð hússins var tekin í gegn á þessu tímabili, meðal annars með endurnýjun hurða, gólfefna og fataskápa.
2002 – gufubað og geymsluskúr
Gufubað var útbúið og geymsluskúr reistur við húsið.
2003 – gluggar og klæðning á efri hæð
Skipt var um alla glugga á efri hæð. Framhlið efri hæðar var jafnframt endurnýjuð og klædd með sedrusviðarklæðningu.
Um 2004 – rafmagnstafla endurnýjuð.
2005 – pallur gerður vestan við húsið.
2005 - jarðvegsskipti og dren við vesturhlið

Skipt var um jarðveg meðfram vesturhlið hússins og drenað við vesturhlið kjallarans til að bæta frárennsli frá húsinu.
2006 – eldhús og innréttingar
Eldhús var endurnýjað ásamt skápum og innréttingum í gangi.
2007 – heitum potti var komið fyrir við húsið.
2008 – efri hæð
Svalir á efri hæð voru fjarlægðar og herbergi á hæðinni stækkað. Baðherbergi á hæðinni var jafnframt endurnýjað.
2011 – baðherbergi á miðhæð var endurnýjað.
2015 – útieldhús útbúið sunnan við húsið með pizzuofni.
2016 – skipt var um glugga í kjallara hússins.
2019 – miðhæð, kjallari og fráveitulagnir
Gólfhiti var settur á miðhæð og gólfefni endurnýjuð.  Kjallarinn var tekinn í gegn og þar útbúin stúdíóíbúð með salerni og sturtuaðstöðu. Gólfhiti var settur í kjallarann og þvottahús og geymslur flísalagðar.
Rafmagnstafla hússins var jafnframt færð á þessum tíma.
Skólplagnir innanhúss voru endurnýjaðar og lagnir endurnýjaðar út fyrir lóðarmörk.
2020 – vatnslagnir
Skipt var út öllum koparlögnum í húsinu og lagnakerfið endurnýjað.
2022 – þak, klæðning og svalir
Ráðist var í umfangsmiklar endurbætur á þaki og ytra byrði hússins.  Skipt var um alla timburklæðningu á þakinu, þakpappi endurnýjaður og ný einangrun sett.  Loftun þaksins var aukin og nýr þakkantur útbúinn.  Klæðning á efri hæð hússins var endurnýjuð með viðhaldsfrírri utanhússklæðningu.  Samhliða framkvæmdunum var farið yfir undirliggjandi timbur og skipt um það sem þurfti, þar á meðal allt timbur á norðurhlið hússins.  Nýjar svalir voru byggðar á norðurhlið hússins og lýsing sett í nýjan þakkant.
2023 – bílaplan og gangvegur
Bílaplan og gangvegur við húsið voru gerð. Hitalögn í lokuðu kerfi var lögð undir bílaplan og gangveg.
2026 – hitaveitugrind, lagnir og stýring á heitum potti
Hitaveitugrind hússins var endurnýjuð og lagnir tengdar henni endurnýjaðar. Stýring fyrir heita pottinn var jafnframt endurnýjuð og sett upp appstýring sem gerir kleift að stjórna pottinum með síma. Eins var sett upp Shelly hússtjórnarkerfi í húsið.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ásbúð 43
Heitur pottur
Skoða eignina Ásbúð 43
Ásbúð 43
210 Garðabær
220,6 m2
Raðhús
725
793 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
Skoða eignina Holtabrún 15
Bílskúr
Skoða eignina Holtabrún 15
Holtabrún 15
415 Bolungarvík
209,3 m2
Einbýlishús
634
324 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Álfhólsvegur 57
Heitur pottur
Álfhólsvegur 57
200 Kópavogur
222,4 m2
Einbýlishús
635
854 þ.kr./m2
189.900.000 kr.
Skoða eignina Dimmuhvarf 4
Á einni hæð
Skoða eignina Dimmuhvarf 4
Dimmuhvarf 4
203 Kópavogur
202,4 m2
Einbýlishús
614
781 þ.kr./m2
158.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin