Sunnudagur 1. júní
Fasteignaleitin
Skráð 22. maí 2025
Deila eign
Deila

Höfðavegur 7

ParhúsNorðurland/Húsavík-640
173.9 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
40.000.000 kr.
Fermetraverð
230.017 kr./m2
Fasteignamat
32.450.000 kr.
Brunabótamat
67.900.000 kr.
Byggt 1916
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2152997
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Talið í lagi
Raflagnir
Þarf að skoða
Frárennslislagnir
Þarf að skoða
Gluggar / Gler
Þarf að skoða
Þak
Þarf að skoða
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Lögeign kynnir eignina Höfðavegur 7B, 640 Húsavík.

Höfðavegur 7b er 173,9 m2 íbúð á þremur hæðum í raðhúsi með þremur íbúðum. Íbúðinn er miðjuíbúð og er húsið er byggð árið 1916 úr steypu, en síðar var byggð íbúð sitthovrum megin við eignina. Eignin er vel staðsett innarlega í botnlangagötu með frábæru útsýni yfir hafnarsvæði.

Nánari lýsing

Íbúð á hæð er 66,7 m2 að stærð og skiptist í forstofu, eldhús, svefnherbergi, snyrtingu, tvær stofur og eldhús. 
Forstofa er flísalögð með hvítum flísum og við forstofu er snyrting með sömu tegund af flísum. Forstofa og snyrting var byggð við húsið árið 1995. Úr forstofu er gengið inn í hol, þar sem hægt er að ganga upp á stiga á rishæð, og á vinstri hæð er svefnherbergi og á þá hægri er hægt að ganga inn í eldhús. Eldhús er með hvítri innréttingu með dökkri borðplötu og góðu rými fyrir borðkrók. Eldhúsinnrétting var endurnýjuð 2018-19. Stofa er tvískipt og er því bæði rými fyrir sjónvarpsstofu og borðstofu. Gluggar í stofunni eru allir með fallegu útsýni yfir hafnarsvæði. Úr sjónvarpsstofu er hægt að labba inn í svefnherbergi sem einnig er með hurð inn í hol.
Gólfefni er eins á allri hæðinni, og hvítar hurðar eru í öll herbergi.
Rishæð er 44,6 m2 og er með baðherbergi, tveimur herbergjum og rúmgóðu holi. 
Bæði herbergi eru rúmgóð og eru með sambærielgu gólfefni og á neðri hæð. Baðherbergi er með sturtu, salerni, handklæðaofn og vaskainnréttingu. Hol er rúmgott fyrir framan herbergi og er stór þakgluggi sem lýsir upp rýmið.
Kjallari er 62,6 m2 að stærð og er með steyptu gólfi og er hann að mestu leyti notaður sem geymsla. Tvö herbergi eru í kjallaranum. Útgangshurð út í garð er úr kjallaranum. 

Annað
- Hellulagt er fyrir framan hús við götu, og ganga þarf upp þrjár steyptar tröppur til að komast að innganghurð í húsið. Garður bakvið hús er gróinn.
- Hús að utan þarfnast viðhalds, en fara lagar þarf sprungur og að mála húsið. 
- Kjallaragólf steypt og stt nýtt frárennsli árið 1995
- Þak málað árið 2022
- Vatnslagnir og raflagnir endurnýjaðar í eldhúsi árið 2018-19
- Teppi á stiga endurnýjað, og veggefni að hluta árið 2018-19. Samhliða voru veggplötur og einangrun sett í stóra svefnherberginu í risi.

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lögeign
https://www.logeign.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugarbrekka 5
Skoða eignina Laugarbrekka 5
Laugarbrekka 5
640 Húsavík
122.7 m2
Fjölbýlishús
614
342 þ.kr./m2
42.000.000 kr.
Skoða eignina Ólafsvegur 45
Bílskúr
Skoða eignina Ólafsvegur 45
Ólafsvegur 45
625 Ólafsfjörður
130.9 m2
Raðhús
413
305 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Túngata 11
Bílskúr
Skoða eignina Túngata 11
Túngata 11
625 Ólafsfjörður
144.8 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
269 þ.kr./m2
38.900.000 kr.
Skoða eignina Hvanneyrarbraut 61
Hvanneyrarbraut 61
580 Siglufjörður
145.4 m2
Einbýlishús
524
274 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin