Mánudagur 30. desember
Fasteignaleitin
Skráð 25. sept. 2024
Deila eign
Deila

Hvanneyrarbraut 61

EinbýlishúsNorðurland/Siglufjörður-580
145.4 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
39.900.000 kr.
Fermetraverð
274.415 kr./m2
Fasteignamat
30.250.000 kr.
Brunabótamat
57.750.000 kr.
AE
Arndís Erla Jónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1947
Þvottahús
Garður
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2130563
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
ágætt
Raflagnir
ágætt
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
ágætt
Þak
ágætt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
nei
Lóð
100
Upphitun
Inngangur
Tveir inngangar
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignamiðlun kynnir eignina Hvanneyrarbraut 61, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0563 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hvanneyrarbraut 61 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0563, birt stærð 145.4 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.


Um er að ræða einbýlishús á tveimur hæðum með stórum garði. Eignin skiptist í efri hæð sem samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, svefnherbergi, fataherbergi og salerni og neðri hæð sem samanstendur af þremur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og forstofu. Timburstigi liggur niður á neðri hæð. Málverk af síldarstúlkum við síldarstörf er á rúnuðum vegg í stofu eftir Ragnar Pál sem málað var árið 1956. Búið er að skipta út flestum hluta af gluggum eignarinnar með viðhaldsfríum gluggum með þreföldu gleri og til eru tveir gluggar sem fara í svefnherbergi og baðherbergi neðri hæðar en á eftir að setja þá í. Einnig er búið að endurnýja allt rafmagn á efri hæð eignarinnar. Nýtt vatns inntak var tekið inn árið 2023 og skipt um vatnslagnir í eldhúsi og á ofnum. Þakið var málað árið 2022.

Forstofa: er bæði á efri og neðri hæð eignarinnar. Á efri hæð er flísalagt með fatahengi og glugga. Á neðri hæð er dúkalagt. 
Eldhús: hefur verið endurnýjað með hvítum Ikea innréttingum og grárri borðplötu. Hitalagnir eru í gólfi sem hafa þó ekki verið tengdar. 
Stofa: er mjög rúmgóð með góðu gluggaplássi og því miklu útsýni. Parket er á gólfi. 
Svefnherbergi efri hæð: er inn af stofu aflokað með vængjahurð og með fataherbergi inn af. Svalahurð er á herbergi en búið er að fjarlægja svalirnar sjálfar. Parket er á gólfi. 
Salerni efri hæð: er með viðarinnréttingu, vask og gólftengdu klósetti. Flísar eru á gólfi og dúkur á vegg. Aðgangur er upp á háaloft og rafmagnstafla inn í skáp. 
Svefnherbergi neðri hæð: eru þrjú með parket á gólfi. Eitt herbergjanna er með rúmgóðum fataskápum. 
Baðherbergi neðri hæð: er með panel á veggjum og dúk á gólfi. Baðkar er með sturtuaðstöðu, vaskur og nýlegt gólftengt klósett.
Þvottahús/geymsla: er niðurgrafið með steyptu gólfi og glugga með opnanlegu fagi. Mikið geymslupláss er í þvottarými. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignamiðlun ehf. - Grandagarður 5 - 101 Reykjavík - Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali í Fjallabyggð


 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/02/202326.900.000 kr.32.000.000 kr.145.4 m2220.082 kr.
18/03/202120.300.000 kr.19.500.000 kr.145.4 m2134.112 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hávegur 8
Skoða eignina Hávegur 8
Hávegur 8
580 Siglufjörður
111.7 m2
Einbýlishús
513
349 þ.kr./m2
39.000.000 kr.
Skoða eignina Hólavegur 23
Skoða eignina Hólavegur 23
Hólavegur 23
580 Siglufjörður
124.7 m2
Einbýlishús
514
320 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Norðurgata 17a
Skoða eignina Norðurgata 17a
Norðurgata 17a
600 Akureyri
111 m2
Fjölbýlishús
311
359 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Sólvallagata 1
Bílskúr
Skoða eignina Sólvallagata 1
Sólvallagata 1
630 Hrísey
179.7 m2
Fjölbýlishús
514
228 þ.kr./m2
41.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin