Miðvikudagur 25. nóvember
Fasteignaleitin
Skráð 28. okt. 2026

Litlabæjarvör 4

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
213 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
218.000.000 kr.
Fermetraverð
1.023.474 kr./m2
Brunabótamat
110.900.000 kr.
Byggt 1985
Baðkar
Sturtuklefi
Á einni hæð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
20815649
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Margir inngangar

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:   

Litlabæjarvör 4 á Álftanesi 
Einstakt og afar glæsilegt einbýlishús á einni hæð, húsið er á sjávarlóð innst í botnlanga á rólegum stað við Litlubæjarvör á vestanverðu Álftanesi.
Húsið stendur á 900 fermetra eignarlóð og nýtur glæsilegs útsýnis til sjávar og yfir Reykjanesfjallgarðinn. 

Litlabæjarvör 4 var friðlýst af mennta- og menningarmálaráðherra árið 2021. Friðlýsingin tekur til ytra borðs hússins og frágangs gólfs, lofts og veggja í stofurými og miðjugangi innandyra. Húsið er yngsta friðlýsta hús á Íslandi.
Minjastofnun heldur utanum friðlýst hús og tekur þátt í öllum kostnaði vegna viðhalds friðlýsta hluta þeirra, sér til þess að þeim sé vel viðhaldið
Friðlýst hús eru í forgangsflokki þegar kemur að úthlutun styrkja úr húsafriðunarsjóði til viðhalds og endurbóta. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Minjastofnunar.  

 
Bókið skoðun hjá Ólafi M. Ólafssyni löggiltum fasteignasala í síma 865-8515 / olafur@hibyli.is

Nánari lýsing:
Hár steyptur veggur deilir húsinu í suður og norðuhlið.
Á norðurhlið er inngangur með gestasalerni, innbyggðum bílskúr, eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergi. Glerþak er yfir inngangi og gluggar í eldhúsi og baðherbergi ná inn á þakið. Þetta gerir það verkum að mikillar dagsbirtu nýtur á norðurhlið.
Gestasalerni er flísalagt og með glugga. Inngangur/forstofa er með innfelldu fatahengi. Eldhús er opið við stofur og er með gluggum, búrgeymsla er inn af eldhúsi. Baðherbergi er inns á ganginum, hvít innrétting, hornbaðkar, gluggar á tveimur hliðum. Inn af baðherbergi er fataherbergi og þvottahús með glugga. Á hægri hönd við forstofu er innangengt í bílskúrinn sem er innbyggður í húsið. Þar er búið að innrétta tvö herbergi, baðherbergi með sturtu er í öðru herbergjanna. Hefðbundin inngönguhurð í bílskúrinn er einnig á norðurhlið hússins.

Suðurhliðin tengist steypta veggnum með glugga sem nær eftir öllu þakinu og göflum að gólfi. Dagsljós leikur því um mitt húsið og sjónarspil er oft ótrúlegt á langveggnum þegar geislar sólar og tungls falla á hann. Sívalar súlur bera þakið og eykur ásýnd þeirra fjölbreytileikann.
Til suðurs eru stofur, hjónaherbergi og vinnu/barnaherbergi. Gólfsíðir gluggar og rennihurðir eru í öllum rýmum til suðurs. Stór arinn blasir við þegar gengið er inn í stofuálmuna sem er glæsileg, björt og með aukinni lofthæð. Hjónaherbergi er með tveimur rennihurðum að gangi sem og baðherbergi handan gangsins, þar eru ekki þröskuldar.
Veggir og loft eru hvít og öll gólf eru klædd með sérskornum ítölskum carrara marmara. Upphitun hússins er með lofthita, baðherbergi er að auki með gólfhita.

Með efnisvali er húsið aðlagað að umhverfi sínu. Allir útveggir eru sjónsteypuveggir með mótaáferð lóðréttrar borðaklæðningar. Gróf sjávarmöl umlykur húsið þar sem stórir mosavaxnir steinhnullungar liggja á víð og dreif. Það er því sem húsið vaxi upp úr jörðinni.

Mikil áhersla er lögð á að dagsbirtan leiki um allt húsið og dansi með veðrinu. Að sumri við sólarupprás snemma morguns stinga fyrstu sólargeislar dagsins sér inn frá norðri um inngang, eldhús og bað. Á veturna sest sólin, eftir að hún hefur dansað letilega rétt ofan við sjóndeildarhringinn, beint ofan í sjó og litbrigði sólarlagsins verða ólýsanleg.

Um Litlubæjarvör 4 hefur verið fjallað í fjölmörgum fagtímaritum, innlendum sem erlendum, og er húsið oft tekið sem dæmi um athyglisverða byggingarlist 9. áratugarins á Íslandi. Myndir og teikningar af húsinu eru í þeim tveimur leiðsöguritum sem gefin hafa verið út um íslenska byggingarlist.
Þekkt innimynd úr stofunni í Litlabæjarvör 4 prýddi forsíðu bókarinnar Heimili og húsagerð 1967-1987 sem kom út árið 1987. Árið 1994 var Litlabæjarvör 4 eitt þriggja einbýlishúsa sem valið var á sýningu arkitektaskólans í Árósum um Íslenska byggingarlist.

Eignin er samtals skráð 213 fm, (þar af innbyggður bílskúr 38 fm).

Hér er um að ræða glæsilegt hús í einstöku og friðsælu umhverfi með óviðjafnanlegu útsýni.


Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu olafur@hibyli.is
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Híbýli
http://www.hibyli.is

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sjávarflöt 1
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Sjávarflöt 1
Sjávarflöt 1
340 Stykkishólmur
204,1 m2
Einbýlishús
714
480 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Skoða eignina Salthamrar 2
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Salthamrar 2
Salthamrar 2
112 Reykjavík
200,6 m2
Einbýlishús
614
818 þ.kr./m2
164.000.000 kr.
Skoða eignina Laugarás 1
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Laugarás 1
Laugarás 1
806 Selfoss
227,3 m2
Einbýlishús
413
527 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Leirutangi 33
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Leirutangi 33
Leirutangi 33
270 Mosfellsbær
200,5 m2
Einbýlishús
524
847 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin