Gott einbýli á einni hæð með bílskúr. Húsið er staðsett í enda botnlanga með stórri lóð sem er 999 fm. Húsið hefur verið endurnýjað að hluta síðustu árin og er eldhúsið sérlega glæsilegt og opið. Alrými er opið og rúmgott með aukinni lofthæð, fjögur svefnherbergi eru í húsinu og hefur bílskúr verið breytt í íbúð sem hægt er að leigja út, en þar er baðherbergi og eldhús, (eitt af herbergjunum fjórum er í bílskúr) hátt til lofts í bílskúr. Á palli aftan við hús er heitur pottur og góður 10 fm einangraður geymsluskúr með rafmagni er á lóð. Örstutt í World Class og sundlaug, stuttur göngutúr í skóla og út á golfvöll.Forstofa með flísum og skápum.
Gesta salerni innaf forstofu, flísar á gólfi og veggjum.
Stofa er björt með parketi á gólfi, aukin lofthæð í stofu og þaðan er gengið út á pall.
Eldhús með hvítri innréttingu og spanhelluborði, tveir ofnar í vinnuhæð.
Herbergisgangur með parketi.
Herbergi I parketi og skápum.
Herbergi II með parketi og skáp.
Herbergi III er hjónaherberi með parketi og skápum.
Þottahús/geymsla Flísar á gólfi.
Bílskúr er opið alrými með parketi, lítil eldhúsinnrétting,
herbergi IIII með parketi og baðherbergi með sturtu. bílskúrinn er 50,8 fm og þar er góð lofthæð.
Árið 2019 var skipt um parket á alrýmum, nýtt eldhús, dregið nýtt rafmagn í eldhús og loft voru spörtluð.
Þakið var málað árið 2022.
Allar nánari upplýsingar veitir Kristján þórir Hauksson lögg. fasteignasali í síma 696-1122 eða á netfanginu kristjan@fastlind.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.