Miðvikudagur 12. mars
Fasteignaleitin
Skráð 12. feb. 2025
Deila eign
Deila

Smyrilshlíð 9 íb. 103

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
86 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
86.900.000 kr.
Fermetraverð
1.010.465 kr./m2
Fasteignamat
78.250.000 kr.
Brunabótamat
56.170.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Byggt 2020
Lyfta
Garður
Bílastæði
Aðgengi fatl.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2509073
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Nýlegt
Raflagnir
Nýlegt
Frárennslislagnir
Nýlegt
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
4 - Fokheld bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Elka, lgf., s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna mjög fallega og vandaða 3ja herbergja íbúð við Smyrilshlíð 9 á Hlíðarenda, við rætur Öskjuhlíðar í Reykjavík.
Íbúð nr. 103 er 86 m², með svölum ásamt sólpalli og stæði í bílageymslu og afhendist fullbúin með gólfefnum, ísskáp/frysti, uppþvottavél, ofni, helluborði og háfi.
Íbúðin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings.  
Bókið skoðun eða fáið nánari upplýsingar hjá Elku Guðmundsd., lgf., s. 863-8813 eða elka@fstorg.is

Hægt er að kynna sér óseldar íbúðir í þessu verkefni á heimasíðunni 102 Hlíðarendi (smella hér)

Nánari lýsing;
Eignin skiptist í opið og bjart alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, þaðan sem gengið er útá 7,3 fm svalir. 7,4 ² geymsla í kjallara.
Íbúðinni fylgir sér bílastæði merkt 01B29 í bílakjallara hússins.  
Frábær staðsetning nálægt miðpunkti miðbæjarins. Stutt er í alla helstu þjónustu, frábærar gönguleiðir, íþróttir, samgöngur, iðandi mannlíf, skóla og stóra vinnustaði.

Smyrilshlíð 9 er 6 íbúða stigagangur sem er tilbúinn til afhendingar við kaupsamning.
Innréttingar eru mjög vandaðar frá danska fyrirtækinu JKE og ná upp í loft til þess að hámarka geymslurými. 
Borðplötur eru úr einstaklega fallegum og sterkum terrazzo quartzborðplötum í eldhúsi og á baði frá Granítsmiðjunni. Rafmagnstæki eru frá Miele
Á baðherbergi og þvottahúsi eru fallegar flísar í ljósgráum tón. Blöndunartæki, handlaugar og salerni er frá Tengi, flísar frá Álfaborg
Aukin lofthæð er í íbúðinni (2,80 metrar) og gólfsíðir gluggar.  Íbúðin afhendist með parketi á gólfi.
Lýsing er hönnuð af Lumex og er með free@home rafstýringu frá ABB em gerir þér kleift að búa til ljósasenur og slökkva öll ljós með einum takka

Nánar um eignir við Smyrilshlíð 9;
Húsin eru hönnuð af Alark arkitektum og innanhússhönnun var í höndum M/STUDIO Reykjavík þar sem mikið var lagt upp úr gæða efnisvali og góðum lausnum.   
Efnið í innréttingunum er annars vegar ekta eikarspónn og hins vegar PU-lakk, sem er eitt það sterkasta á markaðnum í dag. Fataskápar í svefnherbergi og forstofu sem og baðinnrétting eru í sama efni og eldhúsinnrétting.
Allur frágangur er afar vandaður og efnisval mjög stílhreint. Aukin lofthæð er í íbúðum (2,8m) og vandaðir gólfsíðir Velfac gluggar.  
Hefðbundið ofnakerfi er í húsinu. Lýsing er hönnuð af Lumex.  Í öllum íbúðum er Free@home rafstýring frá ABB. Grunnkerfið fylgir með sem gerir notandum kleift að búa til ljósasenur og slökkva öll ljós með einum takka. Hægt er að bæta við kerfið eins og hver vill og vera með fullkomið hússtjórnarkerfi í íbúðinni. Forritið er mjög þægilegt og einfalt í notkun.
Sér bílastæði í bílakjallara fylgir öllum íbúðum. Sér heimtaug er vegna hleðslu rafbíla þannig að ekki verður truflun á rafmagni hússins við hleðslu bíla. 

Garðurinn er einstaklega fallegur og skjólgóður.
Hann er lokaður af með húsunum sem gefa gott skjól og frið frá iðandi umferð miðbæjarins. Í garðinum eru skemmtilegir runnar og tré ásamt borðum og bekkjum og upplýstu leiksvæði fyrir börn, sem gerir svæðið mjög fjölskylduvænt.   Garðurinn er glæsilegur og einstakur sælureitur íbúa.
Í stigagöngum eru stílhreinar flísar í anddyrum og inngöngum en hlýlegt og slitsterkt teppi á stigum og göngum á efri hæðum.
Í öllum íbúðum er vandað ál- og trégluggakerfi frá Velfac. Allt gler er háeinangrandi fyrir hita og hljóði svo að öll hljóð að utan eiga ekki greiða leið inn í íbúðirnar.
Myndavéladyrasími er í öllum stigagöngum og aðgangsstýrt aðgengi er inn í húsið, sem þýðir að það er lyklalaust. Hurð út úr garði er einnig aðgangsstýrð og því garðurinn læstur fyrir utanaðkomandi aðilum.
Bílakjallarinn er á tveimur hæðum með góðri náttúrulegri loftun og beinu aðgengi í alla stigaganga. Aðgangstýring er í bílageymslunni sem og í öllu húsinu sem auðveldar aðgengi. Sérstök rafmagnsheimtaug er í bílakjallarann sem tryggir öllum aðgengi að rafmagni fyrir rafmagnsbíla.
Sérhannaðir eldvarnargluggar eru þar sem við á og standast byggingareglugerð og klæðningin utan á húsinu uppfyllir ströngustu kröfur Mannvirkjastofnunnar um brunavarnir og gæði.
Gangstéttin umhverfis húsið og valdar leiðir inn í garðinum er upphitaðar.  Bílskúrar fylgja nokkrum íbúðum og skilast þeir með fjarstýrðri bílskúrshurð, gönguhurð og brunavarnarkerfi.

Nánar um hverfið:
102 Hlíðarendi er á frábærum stað þar sem stutt er í fjölmenna vinnustaði, skóla og leikskóla. Má þar nefna Landspítalann, Íslenska erfðagreiningu, HR og HÍ, Austubæjarskóla, Hlíðaskóla, Tækniskólann, Kvennaskólann, MH og MR.
Stutt er í alla helstu þjónustu í miðbænum, m.a. matvöruverslanir, sérverslanir, Kringluna, Hafnartorg, Laugaveginn, fjölda veitingastaða, heilsugæslu, LSH, opinberar stofnanir og svo mætti lengi telja. Fjölbreytt afþreying er í næsta nágrenni við 102 Hlíðarenda. Stutt er í mannlíf miðborgarinnar þar sem má finna listasöfn, leikhús, veitinga- og skemmtistaði. Stutt er í Tjörnina, Klambratún, Öskjuhlíð, Nauthólsvík, Hljómskálagarð, Perluna og Hörpuna svo fátt eitt sé nefnt. Ekki þarf að leita langt yfir skammt til að finna sér góða og skemmtilega hreyfingu í nánasta umhverfi svæðisins. Má þar nefna frábæra íþróttaaðstöðu Vals, Mjölni og WorldClass ásamt siglingasvæði, sjóböðum og strandlífi. Auk þess eru skemmtilegar göngu- og hjólaleiðir allt um kring.

Bókið skoðun eða fáið nánari upplýsingar hjá Elku Guðmundsd., lgf., s. 863-8813 eða elka@fstorg.is




 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2020
Fasteignanúmer
2509073
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B2
Númer eignar
9
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.120.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fálkahlíð 5 (423)
Bílastæði
Opið hús:12. mars kl 17:00-17:30
Fálkahlíð 5 (423)
102 Reykjavík
87.2 m2
Fjölbýlishús
211
951 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 5 (227)
Bílastæði
Opið hús:12. mars kl 17:00-17:30
Fálkahlíð 5 (227)
102 Reykjavík
90.9 m2
Fjölbýlishús
312
1000 þ.kr./m2
90.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 5 (227)
Bílastæði
Fálkahlíð 5 (227)
102 Reykjavík
90.9 m2
Fjölbýlishús
312
1000 þ.kr./m2
90.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 5 (423)
Bílastæði
Fálkahlíð 5 (423)
102 Reykjavík
87.2 m2
Fjölbýlishús
211
951 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin