Fasteignasala Austurlands kynnir Stekkjarholt 25, Reyðarfirði: Um er að ræða afar fallegt og fjölskylduvænt 5 herbergja parhús með innbyggðum bílskúr. Húsið stendur á stórri lóð í botnlangagötu, á frábærum stað þar sem stutt er út í náttúruna.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.isEignin skiptist upp í forstofu, glæsilegt alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu, sjónvarpsholi og eldhúsi. Í húsinu eru 4 svefnherbergi og er hjónaherbergi með sér baðherbergi. Þar að auki er stórt aðal baðherbergi, þvottahús og bílskúr þar innan af. Að framanverðu og á hlið hússins er stór og mikill sólpallur með heitum potti og afar huggulegu grillhýsi.
- Nýtt og glæsilegt eldhús frá Brúnás (2025)
- Húsið var hreinsað, pússað og málað að utan (2025)
- Nýtt harðparket lagt á allt húsið (2023)
- Stór sólpallur, að mestu framan við hús, með heitum potti og grillhýsi
- Hjónaherbergi með nýjum fataskápum (2025) og sér baðherbergi
- Tveir geymsluskúrar á lóð, þar af einn fullkominn leikkofi
Einstaklega vel viðhaldið fjölskylduhús á frábærum stað!Forstofa: Flísalögð (2021) með opinni fataaðstöðu. Þaðan er gengið inn í alrýmið um fallegar, tvöfaldar glerhurðir eða inn á gang á vinstri hönd.
Eldhús: Klárað sumarið 2025 með fallegri innréttingu frá Brúnás. Stór eyja með fallegri borðplötu, ríflegt skápapláss og vönduð tæki.
Stofa, borðstofa og sjónvarpshol: Opið og mjög bjart rými með fallegri viðarklæðningu í lofti og innfelldri lýsingu. Sjónvarpsholið er í opnu rými inn af stofu. Úr alrýminu er útgengt út á stóran sólpall framan við húsið.
Hjónaherbergi: Rúmgott með nýjum fataskápum frá Brúnás. Inn af hjónaherbergi er sér baðherbergi. Þar eru flísar á gólfi og veggjum, salerni, vaskur og struta.
Svefnherbergin 3: Upprunalega voru barnaherbergin tvö en 8,2 m² fataherbergi inn af hjóna var nýlega breytt í fjórða svefnherbergið. Nýr fataskápur var settur upp í því herbergi.
Aðal baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Stór viðarinnrétting með tveimur vöskum, baðkar, sturtuaðstaða og ný blöndunartæki.
Þvottahús: Rúmgott rými þar sem innangengt er í bílskúr.
Bílskúr: 33,7 m², mjög snyrtilegur og vel skipulagður.
Lóðin og pallurinn: Sólpallurinn umlykur húsið að framanverðu ásamt austurhlið hússins. Þar má finna heitan pott og sérlega flott grillhýsi. Á lóðinni eru tveir skúrar; annar þeirra 12 m² að stærð en hinn er minni og hentar fullkomlega sem leikkofi fyrir börnin.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.isSkráning eignarinnar skv. HMS:Fasteignanúmer: F2299157
Stærð: Parhús, 185,3 m² (Íbúð 151,6 m² og bílskúr 33,7 m²)
Byggingarár: 2007
Byggingarefni: Timbur
Gildandi fasteignamat 2026: 63.250.000 kr.
Brunabótamat: 107.650.000 kr.
Lóð: Lóð í eigu Fjarðabyggðar, stærð lóðar er 817,4 m²
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.
Skoðunarskylda kaupenda:Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði