-Sérinngangur
-Þvottaaðstaða innan íbúðar
-Frábær staðsetningÍbúðin er 65,5 fm samkvæmt HMS.
Hún er á neðstu hæð í litlu fjölbýli.
Flísalagt er í forstofu, eldhúsi og baðherbergi en stofa og svefnherbergi eru parketlögð.
Íbúðin hefur fengið gott viðhald.
-Nýlegir gluggar
-Nýr sturtuklefi
-Eldhús og baðherbergi hafa verið uppgerð af fyrri eiganda
Hentar sérstaklega vel fyrir einstakling eða par.
Eignin er staðsett mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Laugardalur og Klambratún í næsta nágrenni.
Laugavegurinn einnig í göngufæri.
Nánari upplýsingar veita:
Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 eða aj@palssonfasteignasala.isNánari lýsing:
Gengið er inn í flísalagða
forstofu með fatahengi og hillu bak við hurð.
Baðherbergi er flíslagt með dökkum flísum á gólfi og ljósum á veggjum. Þar er nýr sturtuklefi, hvít vaskinnréttting og hvítir skápar, spegill með sér lýsingu, upphengt salerni og gluggi með opnanlegu fagi.
Á baðherberginu er tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Hol inn af gangi er með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi er mjög rúmgott með parketi og skápavegg.
Eldhús með flísum á gólfi og viðarlitaðri innréttingu. Ljósar flísar eru á milli efri og neðri skápa. Bakaraofn er í vinnuhæð, helluborð og vifta og tengi er fyrir uppþvottavél.
Stofa er stór og parketlögð, með gluggum á tveimur veggjum sem gefur góða birtu.
Sérgeymsla er á sömu hæð, undir stiga í sameign.
Garður er sameiginlegur.
Grunnskóli og matvöruverslun í göngufæri og öll helsta þjónusta er skammt undan.
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.