Gimli fasteignasala og Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse kynna: Austurhólar 6, 800 Selfoss, falleg, björt og vel skipulögð 94,6fm, 4 herbergja íbúð á 4.hæð í nýlegu lyftuhúsi sem er vel staðsett og með fallegu útsýni. Íbúðin skiptist í 3 svefnherbergi, bjart og gott alrými, rúmgott baðherbergi með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara og góða geymslu, innan íbúðar, með miklu skápaplássi. Stórar 15fm svalir eru frá stofu með fallegu útsýni. Vandaðar innréttinga frá HTH og AEG heimilistæki, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, helluborð og ofn. Gott aðgengi er að lyftuhúsi af upphitaðri stétt. Búið er að setja upp tvær hleðslustöðvar, næg bílastæði. Gæludýrahald er leyft. Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.Upplýsingar veitir: Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse í síma 7927576, gudmunda@gimli.is eða
gimli@gimli.isNánari lýsing:Forstofa: Gengið er inn í íbúðina um sérinngang af svölum. Forstofa er björt og með góðum skápum.
Alrými: Eldhús með góðri innréttingu frá HTH og AEG heimilistækjum, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, helluborð og ofn, borðstofa og stofa með veglegum glugga og útgengt á 15fm svalir sem snúa í suðaustur.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi og glugga sem snýr í suðaustur.
Barnaherbergi I: Rúmgott með skáp.
Barnaherbergi II: Rúmgott með skáp.
Baðherbergi/þvottaherbergi: Baðherbergið er rúmgott með fallegum gráum flísum á gólfi og í sturtu, sem er þreplaus og með glerskilrúmi. Innrétting undir vaski og spegil með innfelldri lýsingu. Í innréttingu er tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Er innan íbúðar, góðir skápar og vinnupláss.
Húsið, sem er byggt af Stofnhús 2023, er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með báruáli og/eða sléttu áli. Gluggar og útihurðar eru úr ál/tré.
Bílastæði eru malbikuð og búið er að koma upp hleðslustöðvum fyrir rafmagnsbíla.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Niðurlag: Björt og vel skipulögð eign í góðri staðsetning í nýju hverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla og alla helstu þjónustu.
Eignin Austurhólar 6 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 252-1601, birt stærð 94.6 fm. Nánar tiltekið eign merkt 04-04, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veitir: Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7927576, tölvupóstur gudmunda@gimli.is eða
gimli@gimli.isGimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta.
Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isHeimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala