OPIÐ HÚS frá kl. 17.00 til 17.30 laugardaginn 30. maí n.k. - VERIÐ VELKOMIN -
Fallegt 111,5 fm. endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Eignin skiptist í forstofu, stofu, opið eldhús, baðherbergi, herbergi, þvottaherbergi og innbyggðan bílskúr.
Húsið er í raðhúsaþyrpingu fyrir 60 ára og eldri.
Samkvæmt HMS er eignin merkt 16.01.01 skráð 111,5 fm, þ.a. er innyggður bílskúr 25,8 fm.
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með gólfflísum og forstofuskáp Parketlögð stofa með opnu eldhúsi og suður-verönd. Í eldhúsinnréttingu er AEG ofn, AEG helluborð og er vifta yfir helluborði. Gert er ráð fyrir uppþvottavél íinnréttingu og eru veggflísar milli skápa. Stórt parketlagt herbergi með fataskáp. Flísalagt baðherbergi með baðinnréttingu, sturtuklefa og glugga. Þvottaherbergi er með gólfdúk, innréttingu með skolvaski og tengingum fyrir þvottavél.Innangengt er í bílskúr í gegnum þvottaherbergið. Rafdrifin hurðaopnari er á bílskúrsdyr. Geymsluloft í bílskúr og eru göngudyr úr bílskúr út á suðurlóð hússins.
Fallegt og vel skipulagt endaraðhús. Innangengt er í bílskúr. Falleg lóð.
Staðsetning er við Hrafnistu dvalarheimili aldraðra sjómanna.
Raðhúsið er laust til afhendingar við kaupsamning.
Húsið selst afhendist miðað við að kaupandi yfirtaki réttindi og skyldur m.v. fyrirliggjandi samþykktar framkvæmdir við málun þaksins (áætlaður kostnaður hússins vegna málunar þaks er u.þ.b. kr. 700.000,-) og að kaupandi yfirtaki fyrirliggjandi nauðsynlegar framkvæmdir vegna viðgerða og endurnýjunar neysluvatnslagna (ekki til kostnaðaráætlun vegna framkvæmda vegna neysluvatnslagna), sjá nánar um galla hér að neðan.
Gallar
Stífla - rennur hægt úr neysluvatslögn á baðherbergi - stofnlögn neysluvatns var endurnýjuð inn að húsi fyrir u.þ.b. 2-3 árum en líklega þarf að endurnýja neysluvatnslagnir innan íbúðar (ath. vatn rennur mjög hægt í vask á baðherbergi). Eignin er seld m.v. að kaupendur séu upplýstir um ástand neysluvatnslagna og þurfa kaupendur að framkvæma lagfæringar og endurbætur sem eru nauðsynlegar.
Kvöð / kvaðir
Eignaskiptayfirlýsing sjá skjal nr. B-010574/1991 Um eignarhlutföll o.fl. sjá eignarskiptayfirlýsingu Lóðarleigusamningur sjá skjal nr. E-08336 HLUTI AF U.Þ.B. 6 HA LEIGULANDI. Lóðarleigusamningur 411-E-08336 LÓÐIN ER LEIGÐ FYRIR DVALARHEIMILI FYRIR ALDRAÐA SJÓMENN.. 6 HA LEIGULÓÐ TIL 75 ÁR. ATH. FORLEIGURÉTTUR OG FORKAUPSRÉTTUR DVALARHEIMILIS ALDRAÐRA SJÓMANNA. Yfirlýsing sjá skjal nr. U-005975/2009 Takmarkanir varðandi, geymslu ökutækja í götunni og stæðum og ýmsu er varðar umhirðu lóða og húsa. - sjá nánir upptalningu í skjali. Sambýlisreglur félags húseigenda við Jökulgrunn, samþykktar á húsfundi 21. apríl 2009. Yfirlýsing sjá skjal nr. R-002753/2009. Breytt lóðarmörk - Breytt lóðarstærð.
OPIÐ HÚS frá kl. 17.00 til 17.30 laugardaginn 30. maí n.k. - VERIÐ VELKOMIN -
Fallegt 111,5 fm. endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Eignin skiptist í forstofu, stofu, opið eldhús, baðherbergi, herbergi, þvottaherbergi og innbyggðan bílskúr.
Húsið er í raðhúsaþyrpingu fyrir 60 ára og eldri.
Samkvæmt HMS er eignin merkt 16.01.01 skráð 111,5 fm, þ.a. er innyggður bílskúr 25,8 fm.
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með gólfflísum og forstofuskáp Parketlögð stofa með opnu eldhúsi og suður-verönd. Í eldhúsinnréttingu er AEG ofn, AEG helluborð og er vifta yfir helluborði. Gert er ráð fyrir uppþvottavél íinnréttingu og eru veggflísar milli skápa. Stórt parketlagt herbergi með fataskáp. Flísalagt baðherbergi með baðinnréttingu, sturtuklefa og glugga. Þvottaherbergi er með gólfdúk, innréttingu með skolvaski og tengingum fyrir þvottavél.Innangengt er í bílskúr í gegnum þvottaherbergið. Rafdrifin hurðaopnari er á bílskúrsdyr. Geymsluloft í bílskúr og eru göngudyr úr bílskúr út á suðurlóð hússins.
Fallegt og vel skipulagt endaraðhús. Innangengt er í bílskúr. Falleg lóð.
Staðsetning er við Hrafnistu dvalarheimili aldraðra sjómanna.
Raðhúsið er laust til afhendingar við kaupsamning.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.