Björt og falleg 3ja herbergja íbúð á efstu hæð með suður svölum og fallegu útsýni í Norðlingaholti-Á 4. hæð með sér 22 m² svalir sem snúa í suðurátt
-Stórir gluggar sem hleypa mikilli birtu inn í stofu og eldhús-
Staðsett í fjölskylduvænu hverfi þar sem það er stutt í skóla og helstu þjónustuNánari upplýsingar veita:Orri Hilmarsson astmf. í S:615-3011 eða orri@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.isÍbúðin skiptist í stofu, forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og þvottaherbergi innan íbúðar. Geymsla í kjallara og svalir.
Birt stærð séreignar er 84,6 m². Íbúðin er 74,0 m² ásamt 10,6 m² geymslu í kjallara og svölum sem eru 22,2m². Eigninni fylgir hlutdeild í sameign allra og hlutdeild í lóð.
Nánari lýsing:Gengið er inn í forstofu með flísum á gólfi. Frá forstofu er gengið inn þar sem svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi eru á vinstri og hægri hönd svo er gengið í opið alrými með stofu til hægri og eldhúsi til vinstri. Úr alrými er útgengt á svalir.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa sem tengist eldhúsi í opnu alrými. Parket er á gólfi með gluggum sem hleypa birtu inn í rýmið.
Eldhús: Smekklegt eldhús með parketi á gólfi, innbyggðum ísskáp, góðu skápaplássi, innbyggðri uppþvottavél og bakaraofni.
Svefnherbergi I: Rúmgott hjónaherbergi með parketi á gólfi og veggþiljum sem eru fyrir ofan hjónarúm.
Svefnherbergi II: Svefnherbergi með parketi á gólfi sem hægt er nota sem skrifstofu eða barnaherbergi.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með sturtubaði, upphengdu klósetti, vask, og skápaplássi.
Þvottaherbergi: Skápur með aðstöðu fyrir þurrkara og þvottavél í mittishæð.
Geymsla: Sérgeymsla er 10,6 m².
Svalir: 22,2m² svalir sem snúa í suðurátt með fallegu útsýni yfir Elliðavatni. Tengi er fyrir heitum potti.
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.