Falleg 2ja herbergja íbúð á efri hæð í rótgrónu hverfi í 105 Reykjavík* Rótgróið og fallegt hverfi, stutt í útivistarsvæði eins og Klambratún
* Stutt í alla helstu þjónustu og göngufæri í miðborg Reykjavíkur
* Stærð skv. HMS er 56,1 m2
Nánari upplýsingar veitir
Auður Ýr Jóhannsdóttir a.lgf. í síma 897-0900 eða á audur@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson lgf. í síma 775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
*palssonfasteignasala.is**verdmat.is*Nánari lýsing Anddyri er sameiginlegt, teppalagður stigi
Stofa er mjög stór með parket á gólfi og fallegum gluggum til suðurs
Eldhús er með flísum á gólfi og ágætri innréttingu
Svefnherbergi er með parket á gólfi ásamt fataslá
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, snyrtileg innrétting og baðkar
Geymsla er staðsett á neðri hæð
Þvottahús er sameiginlegt og er staðsett í kjallara. Gengið er inn í það utanhúss.
Nýlegar framkvæmdir á húsinuÞvottahús hefur verið málað nýlega.
Nýjar utanáliggjandi ferskvatns - og frárennslislagnir voru settar upp í stigagangi 2020 og hægt er að tengjast þeim þegar baðherbergi hússins eru endurnýjuð.
Frárennslis- skolplagnir voru myndaðar 2019 og hluti af þeim hafa verið endurnýjaðar.
Ofnar og lagnir fyrir hitaveitu voru endurnýjaðar í heild sinni 2022.
Settur var nýr brunnur og dæla í kyndiklefa hússins 2022.
Búið er að leggja drenlagnir í kringum húsið.
Nýlega (f.nokkrum árum) var rafmagnstafla í sameign endurnýjuð. Sér rafmagnstafla íbúðar er framan við inngang hennar.
2022 var húsið sprunguviðgert. (að hluta)
Góð ráð fyrir kaupendur&SeljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.