Guðbjörg Helga og Gylfi Jens hjá RE/MAX kynna: Kópavogsbraut 85, 200 Kópavogi.
Mjög mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á efri hæð (2. Hæð) í 6 íbúða húsi með óhindruðu sjávarútsýni. Virkt starfandi húsfélag er í húsinu og er í umsjón hjá Eignarekstri.
Uppgefin heildarstærð eignar er 75,3 fm en auk þess er geymsla í kjallara sem er með 7 fm gólffleti að innanmáli, að stærstum hluta með fullri lofthæð, en að hluta undir stiga.
Heildarstærð eignar er því í raun ca 82 fm. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni. >> SÆKTU SJÁLFVIRKT SÖLUYFIRLIT HÉR<< >> SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD MEÐ EÐA ÁN HÚSGAGNA MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR<<Skipulag séreignar: Forstofa, gangur, eldhús, stofa/borðstofa, 2 herbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Í kjallara er geymsla.
Nánari lýsing:Harðparket er á allri íbúðinni utan baðherbergis sem er með flísum og málað gólf á þvottaherbergi. Hvítlakkaðar innihurðar.
Forstofa: Eikar eldvarnarhurð er inn í íbúðina.Gangur / hol: Tengir saman öll rými eignarinnar. Tvöfaldur skápur hólf í gólf á gangi.
Stofa / borðstofa: Mjög björt stofa með stórum endurnýjuðum glugga með fallegu sjávarútsýni í átt að Arnarnesinu. Útgengi er á rúmgóðar suðursvalir frá stofu. Strimlagluggatjöld.
Eldhús: Er endurnýjað. Hvít U-laga innrétting úr Ikea með viðarborðplötu og vegghillum. Ísskápur er innbyggður sem og uppþvottavél. Bakaraofn með stálframhlið í vinnuhæð sem og combi ofn. Span helluborð og hvítur lofthengdur eyjuháfur (eitt gler í ljósi háfs er brotið). Setuaðstaða við enda eldhúsinnréttingarinnar. Eldhúsið er bjart með tveimur gluggum og er vaskurinn við annan gluggann. Strimlagluggatjöld.
Baðherbergi: Hvít innrétting með skúffum undir handlaug og viðarborðplötu. Hár veggengdur skápur með hurðum og opnum hillum. Stór veggspegill. Hvítur handklæðaofn, baðkar með sturtuaðstöðu. Flísar á votsvæði baðherbergis, annars lakkaðir veggir. Nýleg salernisskál. Opnanlegur gluggi.
Herbergi I: Rúmgott og bjart með hvítum fataskáp hólf í gólf eftir einum vegg. Gluggi og útgengi út á svalir. Myrkrarúllugardínur fyrir glugga og svalahurð.
Herbergi II: rúmgott með stórum glugga. Myrkrarúllugardína.
Þvottahús / búr: Er inn af eldhúsi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Borðplata sem býður upp á gott vinnupláss.
Sérgeymsla: Staðsett í kjallara: Rúmgóð með hillum. Geymslan teygir sig undir stigann svo hún er stærri en ella. Gluggi. Er utan fermetratölu.
Sameign: Sameiginlegur inngangur er í snyrtilegt stigahús sem er með tveimur hæðum og kjallara. 2 íbúðir eru á hæð.
Hjólageymsla er aðgengileg um sérhurð á utanverðu húsinu.
Sérmerkt bílastæði fyrir hverja íbúð á lóð auk þess sem 2 gestastæði eru til staðar.
Framkvæmdasaga síðustu árin:2020: Íbúðin var endurnýjuð að mjög miklu leyti, Harðparket á allri íbúð endurnýjað, nýeldhúsinnrétting, lagnir að vegg og tæki í eldhúsi, skápahurðar, nýtt rafmagn dregið í íbúð og tenglar/innstungur endurnýjað.
2018: Gluggi í stofu endurnýjaður. Hús múrviðgert og hús/gluggar málaðir að því loknu.
xxxx: Þakklæðning endurnýjuð (skv. upplýsingum í ástandsskýrslu um húsið.
Aðalfundur húsfélags verður haldinn 15. mars, en einnig er húsfundur 25. febrúar þannig að nánari upplýsingar um niðurstöðu fundar mun liggja fyrir á sýningardegi.
Allar nánari upplýsingar veita:Guðbjörg Helga, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur s. 897 7712 og í netfanginu gudbjorg@remax.is
Gylfi Jens, löggiltur fasteignasali og lögmaður s. 822 5124 og i netfanginu gylfi@remax.is