Erling Proppé lgf. & REMAX kynna: Frábærlega vel staðsett einbýlishús á stórri hornlóð vestast á Seltjarnarnesi með glæsilegu óheftu sjávarútsýni til Esju, Akrafjalls og Skarðsheiðar.
Skráð stærð eignarinnar er 242,5 fm., þar af er 39,3 fm. tvöfaldur bílskur.
Húsið er frábærlega staðsett á stórri 1.000 fm hornlóð vestast á Seltjarnarnesi með glæsilegu óheftu sjávarútsýni til Esju, Akrafjalls og Skarðsheiðar. Í örstuttu göngufæri er vinsælt útivistarsvæði, Vestursvæðin, ósnortin fjara, Grótta og veitingarstaðurinn Ráðagerði. Húsið var byggt 1978, teiknað af Kjartani Sveinssyni og hefur verið vel við haldið alla tíð. Lóðin er vel hirt og snyrtileg, falleg hellulögð aðkoma að húsi með snjóbræðslu.
Nánari lýsing eignarinnar:
Forstofa: flísar á gólfum og góðir skápar.
Gestasalerni: Er inn af forstofu, flísar á gólfum.
Herbergi I : Er inn af forstofu, parket á gólfum.
Gengið inn í rúmgott alrými sem rúmar stofu með fallegum arni, borðstofu og sjónvarpsstofu. Góð náttúruleg lýsing og góð lofthæð. Parket á gólfum.
Eldhúsið hefur verið endurnýjað með vandaðri innréttingu frá Birninum, bakaraofn í vinnuhæð, spanhelluborð. Vínyl á gólfum.
Gengið er úr stofu út um stóra rennihurð í fallegan stóran og skjólsælan bakgarð með steyptri verönd.
Húsið er vel skipulagt, gengið er inn í hluta hússins úr alrými þar sem er að finna herbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Baðherbergi: Flísalagt með góðum gluggum, vegghengdu salerni, baðkar, handklæðaofn og góð nýleg innrétting úr Brúnás.
Herbergi II: Rúmgott herbergi sem upprunalega voru 2 minni herbergi. Parket á gólfum
Herbergi III: Rúmgott herbergi. Parket á gólfum
Hjónaherbergi: Rúmgott með útgengi út í garð og stórum skápum. Flísar á gólfum.
Þvottahús: Inn af herbergja gangi er gengið inn í rúmgott þvottahús með góðri innréttingu, þar er einnig herbergi með sturtu og fataherbergi. Flísar á gólfum að hluta og máluð gólf að hluta.
Bílskúr: Úr þvottahúsi er gengið inn í góðan tvöfaldan bílskúr, báðar hurðar með rafmagnshurðaopnurum.
Umhverfið í kringum húsið er afar fallegt, snyrtilegur vel við haldinn afgirtur garður með hellulagðri innkeyrslu og aðkomu, steyptri verönd, trjágróðri og grasflötum.
Húsið hefur fengið gott viðhald alla tíð, viðhaldssögu eigenda er hægt að nálgast hjá fasteignasala.
Um er að ræða fallegt hús, teiknað af Kjartani Sveinssyni, á einstakri stórri lóð við sjávarsíðuna á Seltjarnarnesi. Einstakt útsýni og vinsæl útisvæði í nánasta umhverfi.
Allar nánari upplýsingar:
Erling Proppé lgf. sími 690-1300 eða erling@remax.is
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.