PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu einbýlishús að Urðarbraut 10, 250 Garði, birt stærð 191.5 fm. Íbúðarhluti er 146,7m² og bílskúr 44,8 m²
Björt og fín fjölskyldueign með fjórum svefnherbergjum, sólpallur og heitur pottur.
Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, rúmgóðan bílskúr með herbergi, hol, þrjú svefnherbergi, rúmgott baðherbergi ásamt eldhúsi og stofu. Sólpallur með heitum pott ásamt geymslu skúr. Steypt bílaplan með snjóbræðslu og lóð tyrfð.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísar á gólfi og góðum skápum. Gengið er inn í bílskúr og þvottahús frá forstofu.
Þvottahús er inn af forstofu, flísar á gólfi, innrétting við vask og útgengt út í lóð.
Hol í opnu rými sem stúkað er af með skáp og tengir öll íverurými.
Þrjú svefnherbergi með parketi á gólfi og skápum.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og veggjum, hornbaðkar, handklæðaofn og innrétting við vask.
Eldhús er opið við stofu, hvít innrétting og eyja. Ofn í vinnuhæð, helluborð og vifta og gert ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Stofa er með parket á gólfi og útgengt út á verönd frá borðstofu.
Bílskúr er með flísar á gólfi en stúkað hefur verið af auka herbergi/geymslu í bílskúr. Herbergið hefur útidyrahurð.
Lóð er tyrft, bílaplan steypt með snjóbræðslu, verönd með skjólveggjum og heitum pott.
** 3-4 svefnherbergi
** 44.8 fm bílskúr
** Heitur pottur
** Pallur með skjólveggjum og geymsluskúr
** Björt og falleg eign
Allar nánari upplýsingar veita:
Hákon Ó. Hákonarson
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 899-1298
hakon@prodomo.is
Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 860-6886
lilja@prodomo.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.