** Opið hús fimmtudaginn 7. maí frá kl. 17:00 til 17:30 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel skipulagt 163,2 m2 endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Vogatungu 90 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús,salerni, geymslu, forstofu, eldhús, stofu og borðstofu.
Gott geymsluloft sem er ekki í fermetratölu eignarinnar (ca. 15 m2). Gott skipulag og fallegar innréttingar frá HTH. parket og innihurðir frá Birgisson. Mikil lofthæð sem gerir eignina bjarta og skemmtilega. Timburverönd og þökulagður bakgarður í suðurátt. Möl er í bílaplani.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 4 (Hjónaherbergi) er mjög rúmgott með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu, vegghengdu salerni, sturtu og baðkari, innaf baðherbergi er þvottahús.
Þvottahús er með innréttingu og opnarlegum glugga. Flísar á gólfi.
Geymslan er stærri en á teikningu með parketi á gólfi. Úr geymslu er aðgengi upp á rúmgott
geymsluloft.
Salerni er inn af geymslu með parketi á gólfi, vegghengdu salerni og lítilli innréttingu.
Eldhús, stofa og borðstofa er í björtu opnu rými með mikilli lofthæð og parketi á gólfi. Í eldhúsi er falleg innrétting. Í innréttingu er blástursofn, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Úr stofu er gengið út á timburverönd og bakgarð í suðurátt.
Bílskúr er skráður 23,0 m2 en er minni en það í dag þar sem það er búið að stækka geymslu og gera salerni. Bílskúrinn er með góðri innkeyrsludyr.
Verð kr. 127.900.000,-