Nýtt á skrá! Krókahraun 10 Hafnarfirði - Frábær 4ra herb. fjölskylduíbúð með bílskúr og rúmgóðum svölum með svalalokun.
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir góða 138,6 fermetra (þar af 32,0 fermetra bílskúr) 4ra herbergja íbúð á 2. hæð (efri hæð) með rúmgóðum svölum í fallegu og vel viðhöldnu fjölbýlishúsi við Krókahraun 10 í Hafnarfirði. Sér þvottaherbergi innan íbúðar. Frábær staðsetning í rólegri og barnvænni lokuðum botnlanga.
Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu og borðstofu, eldhús, baðherbergi, þvottaherbergi/geymslu og þrjú svefnherbergi. Góðar yfirbggðar svalir inn í skjólgóðan bakgarð. Snyrtilegur 32,0 fermetra bílskúr með nýlegri bílskúrshurð.
Húsið var tekið í gegn að utan árið 2017 þar sem það var háþrýstiþvegið, múrvinna unnin og málað.
Frábær staðsetning í næsta nágrenni við Víðistaðaskóla, leikskóla og Tækniskólann. Íþróttastarf FH í göngufjarlægð. Stutt er í alla verslun og þjónustu ásamt fallegum útivistarsvæðum, t.a.m. Hellisgerði.
Nánari lýsing: Forstofa/hol: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs. Stofa: Er rúmgóð, björt og með parketi á gólfi. Rúmar vel setustofu og borðstofu. Góðir gluggar til suðurs og útgengi á yfirbyggðar svalir. Svalir: Eru rúmgóðar til suðurs og með flísum á svalagólfi og svalalokun. Eldhús: Með kork á gólfi og eldhúsinnréttingu með góðu skápaplássi. AEG bakaraofn, helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggar til norðurs og austurs. Flísar á milli skápa og góður borðkrókur. Þvottaherbergi/geymsla: Er vel staðsett inn af eldhúsi. Korkur á gólfi, skápar og hillur. Tenglar fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur og gluggi til austurs. Baðherbergi: Hefur verið endurnýjað á smekklegan máta. Flísar á gólfi og veggjum. Flísalögð sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, skápar og falleg innrétting við vask með speglaskápum fyrir ofan. Gluggi til austurs. Hjónaherbergi: Með dúk á gólfi, góðum skápum á heilan vegg og gluggum til suðurs. Svefnherbergi II: Með dúk á gólfi og glugga til austurs. Svefnherbergi III: Með dúk á gólfi, skápum og glugga til suðurs.
Bílskúr: Er 32,0 fermetrar að stærð, snyrtilegur og með nýlegri bílskúrshurð með rafmagnsopnun. Upphitaður með heitu/köldu vatni. Geymsluskápur: Er staðsettur í sameign sem fylgir íbúð. Hjóla- og vagnageymsla: Er staðsett í sameign hússins.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.