Þriðjudagur 30. júní
Fasteignaleitin
Skráð 30. júní 2026

Aðalgata 5

Atvinnuhúsn.Vesturland/Stykkishólmur-340
90.5 m2
1 Baðherb.
Verð
36.400.000 kr.
Fermetraverð
402.210 kr./m2
Brunabótamat
57.250.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
21156732
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Inngangur
Sérinngangur

Trausti fasteignasala og Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu eignina Aðalgata 5 í Stykkishólmi, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 211-5673 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.  Staðsetning eignar er afar góð, miðsvæðis í bænum og býður upp á fjölbreytta möguleika til nýtingar.

Um er að ræða steinsteypta og vandaða eign, byggða árið 1992, sem er skráð 90,5 fm samkvæmt HMS. Nýtanlegt rými er þó meira þar sem búið er að bæta við fermetrum á efri hæð/lofti. 

Nánari lýsing:
Eignin skiptist flísalagða forstofu þar sem er vaskur og rennandi vatn. 
Þar við hlið er dúkalagt þvottarými sem auðvelt væri að breyta í sturtu eða lítið baðherbergi.
Þar fyrir innan er mjög svo bjart rými sem nýtt er sem eldhús og kaffistofa. Dúkur á gólfi.
Inntaksrými er svo þar fyrir fram með vaski og vinnuaðstöðu. Dúkur á gólfi.
Salnum hefur svo verið skipt í tvö rými en með þeim hætti að auðvelt er að gera að einu rými aftur. 

Stór opnanleg rafdrifin hurð með gluggum er svo öðru megin í salnum. 
Gluggar eru alla kanta og því eignin einstaklega björt og eiguleg.
Lóðin er 1500m2 og er hlutur eignar 17,16% í lóð.

Hér er á ferðinni spennandi eign sem getur hentað undir margvíslegan rekstur eða jafnvel íbúðarnotkun, allt eftir þörfum nýrra eigenda.
Um er að ræða trausta og vel byggða eign sem hefur verið vel við haldið með mikla möguleika á einum besta stað í miðbæ Stykkishólms. 
Hafið samband við Bjössa upp á skoðun að gera því hér er sjón sannarlega sögu ríkari.

Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is


 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Trausti fasteignasala
www.trausti.is

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ólafsvegur 30
Skoða eignina Ólafsvegur 30
Ólafsvegur 30
625 Ólafsfjörður
114.3 m2
Fjölbýlishús
513
262 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Skoða eignina Aðalstræti 50
Skoða eignina Aðalstræti 50
Aðalstræti 50
450 Patreksfjörður
114.3 m2
Atvinnuhúsn.
4
612 þ.kr./m2
70.000.000 kr.
Skoða eignina Desjamýri 13
Skoða eignina Desjamýri 13
Desjamýri 13
270 Mosfellsbær
291.1 m2
Atvinnuhúsn.
395 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Fiskislóð 31
Skoða eignina Fiskislóð 31
Fiskislóð 31
101 Reykjavík
90.3 m2
Atvinnuhúsn.
1
526 þ.kr./m2
47.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin