ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu sjarmerandi einbýli við Borgarveg 7, 260 Reykjanesbæ.Spennandi eign, stutt frá helstu þjónustu, grunn- og leikskóla, íþróttasvæðum, verslun, apóteki og bakaríi. Stærð 178,6 fm að undanskildum skriðkjallara sem telur 55,7 fm, hann nýtist sem geymsla.
Nánari upplýsingar og fyrir skoðunarbókanir:
Jóna Björg Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma
692-5959, tölvupóstur
jona@allt.is.Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma
867-4885, tölvupóstur
elin@allt.is.Endurbætur sl ár:
2020 - Nýr sólpallur.
2020 - 2 gluggar á efri hæð endurnýjaðir.
2022 - Bílastæði hellulagt.
2023 - Hús og gluggar málað.Nánari lýsing eignar:Gengið er inn í rúmgott andyri. Inn af andyri er stórt
þvottahús með útgengi út á baklóð.
Eldhús, borðstofa og stofa er í björtu opnu rými, útgengi út á baklóð. Fín innrétting í eldhúsi.
Baðherbergi á fyrstu hæð er nýlega tekið í gegn með walk-in sturtu, flísar í hólf og gólf.
Á efri hæð eru
3 rúmgóð svefnherbergi, hol og lítið salerni. útgengt er á stórar svalir úr einu herberginu.
Hellulagt bílaplan, lokaður bakgarður með sólpalli. Virkilega snyrtilegt umhverfi.
Viðbygging var byggð 2002, sem er andyri og þvottarhús.
Bílskúr var byggður 2008.Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.