Til sölu húseignin að Bergstaðastræti 12, 101 Rvk. 12 íbúða hús á besta stað í miðbæ Reykjavíkur. Byggt árið 2007, vönduð eign sem hefur ávalt fengið gott viðhald.
Fárfestingatækifæri í Þingholtunum.
Vandað og viðhaldslétt 12 íbúða fjölbýlishús til sölu.
Húsið er fjögurra hæða auk kjallara að hluta, steyptir útveggir og loftaplötur, báruáli er á þaki, útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með vandaðri álklæðningu sem tryggir viðhaldslétta byggingu.
Birt stærð byggingarinnar er 703m2 sem skiptist í 12 sjálfstæðar íbúðareiningar frá 48m2 - 68m2.
Einstök staðsetning: Hér nýtur þú hins sjaldgæfa jafnvægis í rólegu og sjarmerandi hverfiskjarna Þingholtanna, með iðandi mannlíf miðbæjarins handan við hornið.
Skólavörðustígur og Laugavegur eru aðeins í tveggja mínútna göngufjarlægð.
Harpa, Þjóðleikhúsið, Hljómskálagarðurinn og Reykjavíkurtjörn eru innan við 5 mínútna göngufjarlægð,
þessi staðsetning bíður upp á allt það besta sem miðbærinn hefur upp á að bjóða.
Byggingin hefur ávallt fengið stöðugt og gott viðhald. Íbúðarhótel hefur verið rekið í húsinu frá 2008 við góðan orðstír. Eignin selst með öllum búnaði þ.e.a.s. innréttingum, rúmum og búnaði, fullbúin rekstrareining til útleigu og búsetu.
Einstakt tækifæri til að eignast fullbúna eign á einu sterkasta útleigusvæði landsins.
- 12 sjálfstæðar tekjueiningar.
- Sveigjanlegt rekstrarform.
- Miðbæjarstaðsetning með stöðugri eftirspurn.
- Staðsetning með sterka verðþróunarsögu.
- Traust langtíma fjárfesting.
Nánari upplýsingar gefur seljandi í síma 786-1200
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Samkvæmt lögum nr. 40/2002, um fasteignakaup hvílir rík skoðunarskylda á kaupendum við kaup á fasteign. Væntanlegir kaupendur eru hvattir til að kynna sér ástand fasteignar vandlega, bæði við skoðun og áður en tilboðs er gert. Ef þörf krefur er mælt með að leita til sérfræðinga vegna nánari ástandsskoðunar. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar hafi verið annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun
Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
101 | 56,5 | 53,9 | ||
200 | 102 | 69,9 | ||
210 | 73 | 77,9 | ||
101 | 79,1 | 69,7 | ||
201 | 96,3 | 77,7 | ||
210 | 77,7 | 79,9 |