Föstudagur 6. nóvember
Fasteignaleitin
Opið hús:10. nóv. kl 17:30-18:00
Skráð 6. nóv. 2026

Reykjabyggð 22

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
214.6 m2
9 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
698.509 kr./m2
Fasteignamat
138.900.000 kr.
Brunabótamat
113.800.000 kr.
Mynd af Helen Sigurðardóttir
Helen Sigurðardóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1989
Pallur
Bílskúr
Hleðslustöð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2084235
Landnúmer
124980
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Inngangur
Margir inngangar
Kvöð / kvaðir
Bílastæði / göngustígur að húsi : Samkv. seljanda er snjóbræðslan undir öllum hellunum nema 3ja bílastæðinu
Fallegt og bjart einbýlishús á tveimur hæðum ásamt tvöföldum bílskúr við Reykjabyggð 22, Mosfellsbæ.
Góð aðkoma er að húsinu og laglegur garður umhverfis húsið

* 4 rúmgóð svefnherbergi og 1 minna
* Timburverönd með heitum og köldum potti

* Möguleiki á stækkun ( sólstofu )
* Sérstæður tvöfaldur bílskúr með geymslulofti


Viðhald síðustu ára tiltelur ma. :
* Endurnýjað eldhús og settur gólfhiti
* Endurnýjuð innrétting í baðherbergi á efri hæð
* Endurnýjaður gluggi í stofu

Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignar samk. HMS er 214,6 m2, þar af húsið 172,6 m2 og bílskúrinn 42 m2. Eignin stendur á 750 m2 eignarlóð.
Gólflötur á efri hæð er þó stærri en skráning segir til um þar sem hluti er undir súð og þau rými nýtast vel.

Jarðhæð skiptist í forstofu, gestasalerni, stofur, eldhús, þvottahús og geymslu.
Forstofa er flísalögð.
Gestasalerni er flísalagt með wc og innréttingu með handlaug og skúffum.
Stofur eru rúmgóðar með gluggum á þrjá vegu, fallegt viðarparket á gólfi og bjartir glugga setja fallegan svip á rýmið. Útgengt á viðarpall og út í garð.
Eldhús er með nýlegri U-laga innréttingu og flísum á gólfi. Bakarofn og combi-ofn í vinnuhæð, helluborð, vifta og innbyggð uppþvottavél. Bjartur borðkrókur við glugga. Þar er gólfhiti.
Þvottahús er flísalagt með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, skápum, vinnuborði með skolvask og góðu skápaplássi. Útgengt út í garð.
Geymsla er þar innaf með hillum.

Efri hæð skiptist í sjónvarpshol, 4 svefnherbergi, lítið herbergi / geymslu og baðherbergi.
Viðarstigi úr holi leiðir upp á 2. hæð
Sjónvarpshol er rúmgóð stofa með parket á gólfi.
4 rúmgóð svefnherbergi eru öll með fataskápum og parket á gólfi.
Lítið herbergi er skráð sem geymsla á teikningu, parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með baðkari og sér-sturtu, upphengdu wc ásamt nýlegri innréttingu með handlaug og skúffum. Þar er gólfhiti.

Bílskúrinn er með tveimur innkeyrsluhurðum og einnig manngengur hús-megin, geymsluloft er þar yfir. Fordæmi eru fyrir því að breyta nýtingu rýmisins í íbúð.

Umhverfis húsið er gróinn og laglegur garður og timburverönd með skjólveggum, heitum og köldum potti er til suðvesturs.
Við bílskúrinn er hellulagt bílaplan og snjóbræðsla er í göngustíg að húsinu. Þar er einnig hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
03/03/202079.150.000 kr.81.700.000 kr.214.6 m2380.708 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1990
42 m2
Fasteignanúmer
2084235
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
19.100.000 kr.

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fannagil 10
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Fannagil 10
Fannagil 10
603 Akureyri
227,9 m2
Einbýlishús
624
680 þ.kr./m2
154.900.000 kr.
Skoða eignina Úugata - endaraðhús 40
fridjon_vefur-(16).jpg
Úugata - endaraðhús 40
270 Mosfellsbær
239,2 m2
Raðhús
624
623 þ.kr./m2
149.000.000 kr.
Skoða eignina Valsheiði 14
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Valsheiði 14
Valsheiði 14
810 Hveragerði
200,7 m2
Einbýlishús
836
847 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarból 63
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Heiðarból 63
Heiðarból 63
230 Reykjanesbær
218,5 m2
Einbýlishús
514
595 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin