Miklaborg kynnir: Glæsilegar nýjar íbúðir við Hafnarbraut 10 og 10B í kársnesi. Flestum íbúðum fylgir stæði í bílakjallara.
Tæki frá siemens
Eldhúsinnréttingar frá Voke-III
Tilbúnar til afhendingar haustið 2026.
Hafnarbraut 10 er fjölbýlishús með 48 íbúðum í tveimur stigagöngum með lyftu, 4 hæðir ásamt hálf niðurgröfnum kjallara og bílageymslu. Húsið er staðsteypt með einangrun að utan klætt með álklæðningu. Guggar eru úr ál/tré. Þeir veggir innanhúss sem ekki eru steyptir eru á álstoðum klæddir með fermacel plötum. Íbúðir verða afhentar án megin gólfefna, þó verða baðherbergi og þvottahús flísalögð. Eldhús innréttingar eru frá Voke-III með harðplast borðplötu, í eldhúsi eru tæki frá Siemens, bakaraofn, spanhelluborð með innbyggðri viftu, uppþvottavél og ísskápur.
Íbúð 106 er 80,5 fm tveggja herbergja íbúð á neðstu hæð með svölum til vesturs. Aukin lofthæð er í íbúðinni. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Myndir eru úr sýningaríbúð.
Nánari upplýsingar veita
Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 6912312 eða osa@mikaborg.is
Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 8674540 eða ingimundur@miklaborg.is
Sæþór Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 8555550 eða saethor@miklaborg.is
Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 6922704 eða fridjon@miklaborg.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
108 | 99,5 | 72,9 | ||
210 | 87,4 | 88,9 | ||
113 | 91,1 | 79,9 | ||
105 | 84,8 | 69,8 | ||
110 | 58 | 54,9 | ||
105 | 100,9 | 74,9 |