Grenivellir 30 jarðhæð
Mjög flott fjögurra herbergja neðri sérhæð í tvíbýlishúsi á frábærum stað á Eyrinni, Hagkaupsverslun í næsta húsi og stutt í alls konar verslanir og þjónustufyrirtæki.
Laus mjög fljótlega
Skipulag eignar: Forstofa, gangur, rúmgóð stofa, eldhús, þvottahús, búr/geymsla, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Gott nýlegt harðparket á gólfum, flísar á baði og forstofu.
Forstofa er með dökkgráum flísum á gólfi og handklæðaofn.
Gangur: Parket á gólfi.
Stofa er með parketi á gólfi, nokkuð rúmgóð og með glugga til suðurs.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað, gráar flísar á gólfi, baðplötur/þiljur á veggjum, sturta með hengi, svörtum handklæðaofni, upphengdu salerni og handlaug.
Svefnherbergi eru skráð þrjú, öll með parket á gólfum. Í einu þeirra er geymsla eða rými fyrir föt undir stiga og þriðja herbergið er innangengt úr eldhúsi.
Eldhús er við enda gangs, þar er parket á gólfi, ljós innrétting með grárri bekkjarplötu og barborði. Hvítar flísar eru á hluta veggja milli efri og neðri skápa, bakaraofn í vinnuhæð og stæði fyrir 45 cm uppþvottavél.
Úr eldhúsi er gengið inn í þvottahús með góðri ljósri innréttingu, þar er vaskur og stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Inn af því er geymsla/búr, parket á gólfi, hillur.
Úr þvottahúsi er stigi niður í sameign og einnig hægt að komast út um bakdyrainngang.
Sérgeymsla er í sameign, hún er með opnanlegu fagi og parket á gólfi. Svæði fyrir framan geymsluna tilheyrir einnig eigninni.
Annað:
-Hvítar innihurðir eru nýlegar
-Hiti í gólfum forstofu og baðherbergis
-Ljósleiðari í íbúð
-Nýleg útidyrahurð
-Pallur til suðvesturs fylgir neðri hæð
-Sameiginlegur garður, bakdyrainngangur til norðurs.
-Bílastæði fylgir eigninni
-Þak lengt fram yfir steyptar rennur 2015
-Klóak endurnýjað frá kjallara og út í götu 2016
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.