Föstudagur 27. desember
Fasteignaleitin
Skráð 19. des. 2024
Deila eign
Deila

Stóragerði 16

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
93 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
751.613 kr./m2
Fasteignamat
63.650.000 kr.
Brunabótamat
42.950.000 kr.
Mynd af Þorsteinn Ólafs
Þorsteinn Ólafs
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1963
Þvottahús
Garður
Útsýni
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2033382
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Fóðrað 2022 / 2023
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Yfirfarið og skipt um járn 2015
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Úr yfirlýsingu húsfélags um Stóragerði 16 - 20: Á aðalfundi 2023 var talað um að þörf væri á að skoða gluggana, athuga með styrki vegna hljóðeinangrandi glers. Frágangur á hurðum sem skipt var um er ábótavant og það þarf að fá nýjan verktaka í málið. Það er kominn tími á viðhald á tröppunum bæði að framan og aftan, íbúar hafa líka áhyggjur af svalahandriðunum sem eru orðin léleg. Stjórn ætlar að skoða öll þessi mál. Það var samþykkt að veita stjórn heimild til að fá tilboð og samþykkja ástandsskoðun á húsinu, þ.e. að taka út svalir, glugga og fleira. Sjá nánar ósamþykkta aðalfundargerð 21. febrúar 2023. Á aðalfundi 2024 var samþykkt að brjóta upp viðhaldsverkefni, m.a. úr ástandsskýrslu, með tilliti til kostnaðar og hversu aðkallandi verkefnin eru. Sjá aðalfundargerð 13.02.2024. Úttekt hefur farið fram á ástandi hússins: Ástandsskoðun, Fasteignaskoðun júní 2023. Andri Páll, ástandsskoðun vegna leka 25.10.2024.
Úr yfirlýsingu húsfélags um Stóragerði 16: Setja þrýstijafnara á sameign og endurnýja ofnloka sem þarf.
Innstæða í sjóðum húsfélags um Stóragerði 16 - 20 kr. 4.4493.698. Í sjóðum húsfélags um Stóragerði 16 kr. 2.050.973.
Þorsteinn Ólafs löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna fallega og bjarta 3ja herbergja 93,2 fm íbúð sem samanstendur af 82 fm íbúð á 1. hæð auk 3,2 fm geymslu og 7 fm aukaherbergis í kjallara. Suðursvalir. Frábær staðsetning, stutt er í leikskóla, grunnskóla, íþróttaaðstöðu, verslanir og aðra þjónustu.  

Hér er hægt að sjá eignina í 3D:https://my.matterport.com/show/?m=9UQPUg3eFdh


Íbúðin samanstendur af forstofu, stofu, eldhúsi, baðherbergi, 2 svefnherbergjum í íbúð auk aukaherbergis og sérgeymslu í kjallara. Í sameign á jarðhæð er sameiginlegt þvottahús (hver með sína vél), sameiginleg hjóla- og vagnageymsla ásamt tveimur sérgeymslum íbúðar. Önnur geymslan er með glugga og er í dag nýtt sem herbergi og er í útleigu. Sameiginlegt salerni er í kjallara. Geymsluskápur er á stigapalli. Möguleiki er á að leigja út auka herbergi í kjallara.

Nánari lýsing:
Harðparket frá 2019 er á allri íbúðinni en flísar í hólf og gólf á baðherbergi.  
Við inngang í íbúðina er frá forstofu gengið í eldhús og herbergi á hægri hönd. Hjónaherbergi og stofa er á vinstri hönd og baðherbergi fyrir miðju.  
Eldhhúsið var tekið í gegn 2018. Er með fallegri innréttingu frá Kvik með eikarborðplötum og flísum á milli. Árið 2022 var bætt við innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél.
Svefnherbergið er rúmgott með góðum skápum og frá því er útgengi á svalir í suður.
Baðherbergið er með góðri sturtu og upphengdu wc.
Stofan er björt og rúmgóð með útgengi út á svalir í suður.  
Í sameign er sér geymsla og svo aukaherbergi með glugga.  Sameiginleg snyrting er í sameign ásamt þvottahúsi.


Framkvæmdir og endurbætur:
2022-2023 - Vatnslagnir og frárennsli var tekið í gegn og fóðrað.
2020/2021 - Frárennslisrör sett í gólf í þvottahúsinu og gólfið málað með epoxi.
2020 - Skipt um teppi á stigagangi og plast á handriði.
2020 - Skipt um alla rofa í sameign
2020 - Handrið sett við útitröppur 2018 - Ný rafmagnstafla í sameign fyrir allt húsið.
2015 - Þak yfirfarið og skipt um járn
2014 - Húsið sprunguviðgert að utan og málað. Ásamt svölum og svalagólfi.

Allar nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Ólafs löggiltur fasteignasali í síma 842 2212 eða á netfangið to@remax.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband við Þorstein Ólafs lögg. fasteignasala í síma 842 2212 eða á netfangið to@remax.is. og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/02/201939.150.000 kr.39.000.000 kr.93 m2419.354 kr.
14/11/201836.400.000 kr.39.750.000 kr.93 m2427.419 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Háaleitisbraut 155
Háaleitisbraut 155
108 Reykjavík
105.1 m2
Fjölbýlishús
413
665 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Háaleitisbraut 155
Bókið skoðun
Háaleitisbraut 155
108 Reykjavík
103.7 m2
Fjölbýlishús
413
673 þ.kr./m2
69.800.000 kr.
Skoða eignina Sogavegur 81
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Sogavegur 81
Sogavegur 81
108 Reykjavík
78.5 m2
Fjölbýlishús
211
880 þ.kr./m2
69.050.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1A Íb.112
Grensásvegur 1A Íb.112
108 Reykjavík
74 m2
Fjölbýlishús
21
972 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin