**Opið hús fimmtudaginn 12. mars milli kl. 17:00 og 17:30**
Björt fjögurra til fimm herbergja 118,1m² útsýnisíbúð á efstu hæð í góðu fjölbýli innst í botnlanga við Háaleitisbraut 117 - Góð staðsetning - Fallegt útsýni til norðurs. Vel staðsett fjöbýli þar sem stutt er í alla helstu þjónusu ásamt skóla, leikskóla, matvörubúð ofl. Smellið hér til að fá söluyfirlit sent straxSamkvæmt skráningu HMS er birt stærð eignarinnar 118,1m², þar af er geymsla skráð 5,6m².
Íbúðin skiptist í eldhús, stofu og borðstofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Nánari lýsing: Anddyr/hol með fataskápum. Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með útgengi út á svalir til suðvesturs. Parket á gólfi.
Eldhús er bjart og rúmgott, innrétting frá Kvik, tengi fyrir uppþvottavél, innbyggður ísskápur. Korkur á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú og fataskápar í tveimur þeirra (lítið mál að búa til fjórða herbergið í borðstofu eins og teikning sýnir). Frá hjónaherbergi sem er rúmgott er einnig er útgengi út á svalirnar. Parket á gólfum herbergja.
Baðherbergi er með flísum á gólfum, baðkar með sturtuaðstöðu, ágætis innrétting með skápum í kringum handlaug.
Sérgeymsla er 5,6 fm og er hún í kjallara hússins.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla er í kjallara.
Nánari uppl.Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@eignamidlun.is