GLÆSILEG 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 1. HÆÐ MEÐ SVÖLUM – NÝLEGA ENDURNÝJAÐ ÞAK OG GLUGGARBjört og góð 3ja herbergja íbúð með suðvestur svölum á eftirsóttum stað í miðbæ reykjavíkur.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 78,10 fermetrar.
Baldur fasteignasali - Sími 450-0000 - baldur@fastgardur.is -
Skoða meðmæli viðskiptavina Viðhald og endurbætur á húsi2024 – Þak endurnýjað.
2016 – Skipt um alla glugga.
2013 – Frárennslislagnir og skólplagnir endurnýjaðar hægra megin (íbúðarmegin) í stigagangi frá 4. hæð niður í kjallara skv. upplýsingum úr sölulýsingu á annarri eign á stigagangnum.
2006 – Skólp- og vatnslagnir endurnýjaðar út í götu samkvæmt upplýsingum úr sölulýsingu eignar í sama húsi.
Einstaklega falleg og björt 3ja herbergja íbúð á eftirsóttum stað í miðborg Reykjavíkur! Íbúðin er rúmgóð og vel skipulögð. Nánari lýsing: Forstofa/hol: Parket á gólfi og fataskápur.
Eldhús: Góð innrétting með efri og neðri skápum og flísum á milli. Gott skápapláss.
Stofa/borðstofa: Stofan er björt og rúmgóð með góðu plássi fyrir borðstofuboð, útgengi út á skjólgóðar suður svalir, parket á gólfum.
Hjónaherbergi: Búið er að loka á milli stofu og þessa herbergis sem nýtist í dag sem stórt hjónaherbergi með góðu skápapláss og glugga sem snýr suður út í garð.
Svefnherbergi: Gott herbergi með skápum.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Baðkar með sturtu, salerni og vaskur.
Geymsla: Uþb. 5 fermetra sérgeymsla í kjallara.
Sameign & aðstaða• Sameiginlegt þvottahús þar sem hver er með sína vél.
• Vagn- og hjólageymsla í kjallara / jarðhæð.
• Sérgeymsla í kjallara, um 5 fermetrar.
Sameiginlegur garður- Leikvöllur fyrir börnin
- Körfuboltavöllur
- Svæði með æfingartækjum
Einstaklega góð staðsetning í hjarta borgarinnar! Stutt er í alla helstu þjónustu, veitingastaði, kaffihús og verslanir. Einnig eru góðar almenningssamgöngur í göngufjarlægð og fjölbreyttir útivistarmöguleikar í næsta nágrenni.Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / sími 450-0000
Instagram: Baldur fasteignasaliNetverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.