Miðvikudagur 10. júní
Fasteignaleitin
Opið hús:16. júní kl 17:00-17:30
Skráð 10. júní 2026

Breiðakur 9

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
227.8 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
225.000.000 kr.
Fermetraverð
987.709 kr./m2
Fasteignamat
183.250.000 kr.
Brunabótamat
130.850.000 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2329744
Landnúmer
210399
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Já, svalir út frá hjónasvítu sem vísa til norð-vesturs
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Glæsilegt, vandað og vel skipulagt 227,8 fm. endaraðhús með fjórum svefnherbergjum við Breiðakur 9, 210 Garðabæ. Þar af er innbyggður bílskúr sem er 29,0 fm. 

Húsið er teiknað af Sigurði Hallgrímssyni og byggt 2018. Góð aðkoma er að húsinu, upphitað bílaplan og góð bílastæði fyrir fjóra bíla.  

Flott hjónasvíta með sér baðherbergi, sér fataherbergi og útgengi út á svalir. Þrjú önnur mjög rúmgóð og flott barnaherbergi eru á efri hæðinni, auk þess er annað sér fataherbergi/geymsla. Sjónvarpsstofa og flott baðherbergi með baðkari og sér þvottahús inn af baðherberginu. Á neðri hæð er forstofa, gestasalerni, búr, eldhús, stofa og borðstofa með útgengi út á vel hannað útisvæði með skjólgóða verönd og heitum potti. Tilvalið svæði til útiveru og afslöppunar.

Í eldhúsi er niðurtekið sérsmíðað loft með hljóðdúk og lýsingu. Vandaðar innréttingar frá danska framleiðandanum HTH. Borðplata í eldhúsi og búri ítalskur 1,2 cm Sapienstone innflutt frá Ítalíu og einstakt steinhelluborð frá spænska framleiðandanum TBP tech innflutt af Parki. Svartur vaskur frá tengi. Tæki í eldhúsi og búri eru af tegundinni AEG frá Ormsson.

Blöndunartæki vaska inn á baðherbergjum eru frá Vola. Borðplata og vaskar í hjónasvítu, aðalbaði og þvottahúsi hvítt Corian frá ORGUS. Í fataherberginu eru opnar innréttingar frá IKEA. Ítalskar svartar flísar með marmaraútliti frá PARKI á neðri hæð og hvítar flísar með marmaraútliti á böðum á efri hæð ásamt veggjum inn í fataherbergi hjóna. Flísar eru á gólfi neðri hæðar og teppi á efri hæð og stiga er með extra þykku undirlagi, mjög næs og þægilegt að ganga á. Innbyggð lýsing í lofti á báðum hæðum. 
 
Þetta er frábært fjölskylduhús á eftirsóttum stað sem sameinar þægindi, fegurð og gott flæði ásamt vönduðum frágangi.

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661 6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is

Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með gólfsíðum gluggum og fataskápum. Inn af forstofu er gestasalerni með opnanlegum glugga, upphengdu salerni og handlaug með Vola blöndunartækjum. 
Hægt er að loka forstofu af með sérsmíðari smíðajárns vængjahurð. Strax á vinstri hönd er rennihurð með spegli á, ef henni er rennt til hliðar, þá er innangengt þaðan inn í búr sem er með gott vinnu- og geymslupláss. Sapienstone á borði, lítil undirlímdur vaskur og frystir. Frá búri er líka hægt að opna inn í eldhús milli skápa þegar verið er að brasa og vinna á báðum stöðum. Þá er einnig falin hurð í innréttingunni sjálfri frá búri yfir í eldhús og öfugt. Eldhúsið er glæsilegt með Ítölskum Sapenstone borðplötum og einstaku steinhelluborði með sama útliti. Undirlímdur vaskur, kaffi bar, innbyggður kæliskápur, innbyggð uppþvottavél og bökunarofn. Frábært vinnu- og borðpláss er við eyju og inn í búri auk þess sem gott bil er á milli eyju og innréttingar svo auðvelt er að athafna sig. Einnig er mikið og gott skúffupláss báðum megin við eyjuna. Í eldhúsi er niðurtekið sérsmíðað loft með hljóðdúk og lýsingu. Borðstofan er rúmgóð og með gott rými  fyrir alvöru borðstofuborð. Gólfsíðir gluggar og svalahurð sem vísar út á útisvæðið gefa góða birtu inn. Stofan er opin inn í borðstofu að hluta til inn í eldhúsið. Rúmgóð og björt stofa með gólfsíðum gluggum, sérsmíðað smíðajárn utan um glervegg skilur að stofu og aðgengi að stiganum upp á efri hæðina, þar bakvið hefur verið nýtt sem vinnurými.

Efri hæð:
Stiginn og öll efri hæðin er teppalögð að undanskildum votrýmum efri hæðar. Mjög fallegt og mjúkt teppi með extra mjúku undirlagi. Sjónvarpsholið er mjög rúmgott og opið. Barnarherbergin eru þrjú, öll mjög rúmgóð. Sér fataherbergi á hæðinni þjónar herbergjunum þrem. Baðherbergið með flísar á gólfi og upp meðfram baðkarinu og upphengdu salerni.  Innbyggð blöndunartæki við baðkar. Óbein lýsing er bæði í lofti og við gólf. Hvít innrétting er með Corian plötu og vask. Inn af baðherberginu er sér þvottarými með opnanlegum glugga sem þjónar báðum rýmum, hvít innrétting með corian borðplötu og gott skúffupláss, tengi og aðstaða til að hafa þurrkara ofan á þvottvél. Skolvaskur með skápum fyrir ofan og neðan. Fyrir neðan opnanlega gluggann er handklæðiofn. Hægt er að loka af þvottarými með hvítri rennihurð með spegli. Hjónasvítan er með baðherbergi inn af sér, sér fataherbergi, gólfsíðum gluggum og útgengi út á stórar og flottar svalir sem vísa í norð-vestur. Flottur svartur klæddur veggur skilur að sér sturturými og salernisrými hjónasvítunnar. Hvít sérsmíðuð handlaug með Vola blöndunartæki er við upphengt salernið, þar er líka opnanlegur gluggi. Á veggnum á móti sturtunni er hvít innrétting með annan skolvask og stóra spegla meðfram með innbyggðri lýsingu. Innbyggð blöndunartæki eru í sturtunni. Sér fataherbergi er inn af hjónasvítu með glugga sem veitir birtu inn og með opnanlegu fagi. Fatahengi meðfram öllum veggjum, gott pláss á milli til að athafna sig. Sér auka innbyggð lýsing í lofti. 

Útsvæðið er frábært, skjólgott og huggulegt. Harðviðar verönd og timbur skjólveggir með gleri í á tveimur hliðum til að hleypa bæði birtu inn og græna litnum frá gróðrinum gefur aukna hlýju inn í rýmið. Heitur pottur, lágstemmd en flott lýsing á skjólveggjum. Gönguhurð er út á grasblett með steyptum skjólveggjum að neðanverðu en timburskjólveggjum ofan á. Mikið og gott pláss. 

Bílskúrinn er innbyggður með rafdrifinni bílskúrshurð. Epoxy á gólfi og innangengt er frá bílskúr inn á gang við forstofuna. 

Eignin er staðsett á rólegum og fjölskylduvænum stað í Breiðakri 9, 210 Garðabæ, stutt frá helstu þjónustu, skólum og leikskólum. 

Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / gulli@remax.is og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / gunnar@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.  Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/04/201851.600.000 kr.79.900.000 kr.227.8 m2350.746 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2018
29 m2
Fasteignanúmer
2329744
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.200.000 kr.

Myndir (53)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hlíðarbyggð 38
Opið hús:15. júní kl 18:00-18:30
Hlíðarbyggð 38
210 Garðabær
205.3 m2
Raðhús
514
852 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 7 íb208
Opið hús:14. júní kl 13:00-13:30
Skoða eignina Eskiás 7 íb208
Eskiás 7 íb208
210 Garðabær
81 m2
Fjölbýlishús
514
1196 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 7 íb206
Opið hús:14. júní kl 13:00-13:30
Skoða eignina Eskiás 7 íb206
Eskiás 7 íb206
210 Garðabær
93.6 m2
Fjölbýlishús
312
960 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 7 íb204
Opið hús:14. júní kl 13:00-13:30
Skoða eignina Eskiás 7 íb204
Eskiás 7 íb204
210 Garðabær
102.3 m2
Fjölbýlishús
514
957 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin