Sunnudagur 20. september
Fasteignaleitin
Skráð 20. sept. 2026

Hlyngerði 7

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
68.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
46.900.000 kr.
Fermetraverð
686.676 kr./m2
Fasteignamat
35.400.000 kr.
Brunabótamat
42.950.000 kr.
Mynd af Jóna Björg Jónsdóttir
Jóna Björg Jónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2007
Garður
Pallur
Fasteignanúmer
2303575
Landnúmer
169277
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Upphitun
Gólfhiti/rafmagnsofnar
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:
Hlyngerði 7, 805 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 230-3575 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR, birt stærð 68.3 fm.

Nánari upplýsingar veitir:
Jóna Björg Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5506 tölvupóstur 
jona@allt.is
Dísa Edward Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5510 - tölvupóstur disa@allt.is

 
Nánari lýsing eignar:
Til sölu er fallegur og vel skipulagður sumarbústaður í landi Mýrarkots, austan við Hraunborgir og í aðeins um 10 mínútna akstursfjarlægð frá Minni-Borg. Bústaðurinn stendur á eignarlóð á lokuðu og góðu sumarhúsasvæði með símahliði. 
Bústaðurinn er hlýlegur og vel skipulagður með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum, góðum innréttingum og notalegum borðkrók. Utandyra tekur við stór pallur sem er að hluta til yfirbyggður, ásamt stórum og nýlegum rafmagnspotti með loki. Einnig er stór geymsluskúr á lóðinni.


Nánari lýsing eignar:
Í anddyri er góður eikarfataskápur, flísar á gólfi og gólfhiti.
Eldhús er með viðarinnréttingu, innbyggðri 45 cm uppþvottavél, bakaraofni og helluborði. Þar er góður borðkrókur og eikarparket á gólfi. Við borðkrók er svefnaaðstaða fyrir einn.
Baðherbergi er með góðri eikarinnréttingu, upphengdu salerni, sturtuklefa og handklæðaofn. Flísar eru á gólfi og gólfhiti.
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð og með eikarparketi á gólfum.
Geymsla er með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.

Útiaðstaða:
Við bústaðinn er stór og góður pallur sem býður upp á notalega aðstöðu til útiveru. Hluti pallsins er yfirbyggður og við enda hans er stór og nýlegur rafmagnspottur með loki.
Á lóðinni er rúmgóður grasflötur með nægu leikplássi. Þar eru einnig rólur og því góð aðstaða fyrir börn til leikja og útiveru, jafnframt stór geymsluskúr við enda á lóðinni. Athygli er vakin á því að hvorki er hiti né rafmagn í skúrnum.

Frábær staðsetning á Suðurlandi
Bústaðurinn er staðsettur í landi Mýrarkots, austan við Hraunborgir og í um 10 mínútna akstursfjarlægð frá Minni-Borg. Svæðið er lokað með símahliði.
Stutt er til fjölmargra þekktra staða og náttúruperla á Suðurlandi, svo sem Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Einnig er stutt í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fjölbreyttar og fallegar gönguleiðir.
Staðsetningin hentar því einstaklega vel þeim sem vilja njóta friðsældar og náttúru en jafnframt hafa greiðan aðgang að afþreyingu, þjónustu og vinsælum áfangastöðum Suðurlands.
Félagsárgjald er um 30.000 kr. og er félagsgjaldið nýtt til framkvæmda og viðhalds á svæðinu. Auk þess er greitt vatnsgjald.
Snjómokstur er á föstudögum og sunnudögum yfir vetrartímann og á svæðinu er einnig sameiginlegt leiksvæði í eigu húseigenda.

Helstu kostir eignarinnar:
• Frábær staðsetning á Suðurlandi
• Tvö rúmgóð svefnherbergi
• Eikarparket á gólfum
• Gólfhiti í anddyri og á baðherbergi
• Innbyggð 45 cm uppþvottavél
• Bakaraofn og helluborð
• Góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara
• Stór pallur, að hluta til yfirbyggður
• Stór og nýlegur rafmagnspottur með loki
• Stór geymsluskúr
• Lokað sumarhúsasvæði með símahliði
• Snjómokstur yfir vetrartímann
• Sameiginlegt leiksvæði
• Stutt í sundlaug, golf, veiði og útivist
• Fjölmargar af helstu náttúruperlum Suðurlands í þægilegri akstursfjarlægð


Fallegur og vel staðsettur sumarbústaður fyrir þá sem vilja njóta kyrrðar, góðrar útiaðstöðu og fjölbreyttrar afþreyingar í hjarta Suðurlands.


Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/12/200813.175.000 kr.7.900.000 kr.68.3 m2115.666 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mýrarkot Leigut.
Mýrarkot Leigut.
805 Selfoss
136.2 m2
Sumarhús
514
512 þ.kr./m2
69.800.000 kr.
Skoða eignina Grensás 34
Á einni hæð
Skoða eignina Grensás 34
Grensás 34
805 Selfoss
102 m2
Sumarhús
43
480 þ.kr./m2
49.000.000 kr.
Skoða eignina Grensás 32
Á einni hæð
Skoða eignina Grensás 32
Grensás 32
805 Selfoss
102 m2
Sumarhús
413
489 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Grensás 30
Á einni hæð
Skoða eignina Grensás 30
Grensás 30
805 Selfoss
102 m2
Sumarhús
413
489 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin