Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu
LAUFÁSVEGUR 19, 101 Reykjavík. Björt og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð á eftirsóttum stað í miðborg Reykjavíkur. Eignin skiptist meðal annars í rúmgóða stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi, og geymslu-/þvottarými innan íbúðar.
Eignin er skráð alls 91,5 fm. samkvæmt HMS. - Smelltu hér til að sækja söluyfirlitNánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í forstofu með flísum á gólfi. Þaðan er komið inn á parketlagðan gang sem tengir saman helstu rými íbúðarinnar.
Stofa 1: Björt og rúmgóð stofa með stórum gluggum og parketi á gólfi. Góð aðstaða fyrir setustofu og borðstofu.
Stofa 2: Björt og rúmgóð stofa inn af Stofu 1 með tvöfaldri glerhurð, stórum glugga og parketi á gólfi. Stofan er í dag nýtt sem skrifstofu eða aukaherbergi en býður einnig upp á möguleika á nýtingu sem annað svefnherbergi.
Eldhús: Rúmgott eldhús með eldhúsinnréttingu, góðu skápaplássi og flísum á gólfi. Innbyggður ísskápur, bakaraofn, helluborð, háfur og tengi fyrir uppþvottavél. Aðstaða fyrir eldhúsborð og útgengt á skjólgóðum timburpalli.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi, stórum glugga og fataskáp. Inn af herberginu er geymslu-/þvottarými með glugga, parketi á gólfi og tengingu fyrir þvottavél. Rýmið býður einnig upp á möguleika á nýtingu sem fataherbergi (e. walk-in closet).
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með baðkari, upphengdu salerni og handlaug með innréttingu.
Pallur: Rúmgóður og skjólgóður timburpallur með útsýni yfir gróið nærumhverfi. Útgengt er á pallinn úr eldhúsi.
*Olíuborið viðarparket er á öllum gólfum íbúðarinnar, að undanskildum eldhúsi, baðherbergi og forstofu, þar eru flísar.*Nýlegar endurbætur:
2020 Húsið múrað og heilmálað að utan.
2019 Nýjir dyrasímar með myndavél.
2017 Skipt um þak og þakrennur endurnýjaðar.
2014 Rafmagnstafla í sameign færð og endurnýjuð.
Eignin er staðsett í eitt af rótgrónustu og eftirsóttustu íbúðarhverfi miðborgarinnar. Hér er stutt í alla helstu þjónustu, verslanir, veitingastaði og menningarlíf borgarinnar. Í næsta nágrenni eru falleg útivistarsvæði, meðal annars Hljómskálagarðurinn og Tjörnin. Einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja njóta þess besta sem miðborg Reykjavíkur hefur upp á að bjóða.
Allar nánari upplýsingar veita:
Anton Y. Sakornram, aðstoðarmaður fasteignasala, s.
779-5463 /
anton@trausti.isAuðun Ólafsson, löggiltur fasteignasali, s.
894-1976 /
audun@trausti.isBóka verðmatwww.trausti.isTrausti á Facebook