LIND Fasteignasala & Páll Konráð lgfs kynna með stolti raðhús á einni hæð við Staðarborg 17B í nýju fjölskylduvænu íbúðarhverfi í Vogunum.
Staðarborg 17 eru 6 hús í raðhúsalengju með 2 bílastæðum fyrir framan hvert hús og stendur í nýju íbúðahverfi í Vogum, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu — leik- og grunnskóla, íþróttasvæði, sundlaug og verslun. Þægilegur akstur er bæði til Keflavíkur og höfuðborgarsvæðisins, sem gerir Vogana að fullkomnum stað fyrir fjölskyldur og þá sem vilja lifa í rólegu, grónu umhverfi.
Nánari upplýsingar veita:
Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is
Eignin er skráð 93 fm. og afhendist fullbúin með öllum gólfefnum. Sólpallur til vesturs út af stofu með skjólveggjum.
Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu/eldhús, þrjú svefnherbergi, geymslu/þvotthús og baðherbergi.
Afhending eignar er í júlí 2026.
-Gólfsíðir gluggar í alrými.
-Danfoss stýrikerfi fyrir gólfhita.
-Aukin lofthæð.
-Hleðslustöð fylgir.
-Lagnaleið fyrir heitan pott.
-Tvö bílastæði eru fyrir framan hvert hús/Snjóbræðsla
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfum og rúmgóðum fataskápum.
Stofa og borðstofa er í opnu alrými með eldhúsi, rúmgóð stofa með útgengi á sólpall, lofthæð innan eignarinnar á hæsta punkt eru um fjórir metrar.
Eldhús er opið við stofu. Eldhúsinnrétting er frá HTH og tækin frá AEG. Span helluborð með viftu, ofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti.
Svefnherbergin eru þrjú, öll hafa þau parket á gólfum og fataskáp.
Þvottahús/geymsla er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara og þar er vaskur. Flísar á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með 60x60 flísum, upphengt salerni, sturtuklefi og innrétting við vask með ljúflokun á skúffum.
Geymsla er einnig fyrir ofan baðherbergi, aðgengi frá einu svefnherbergjanna og er möguleiki að nota rýmið sem svefnloft.
Lóð er tyrfð, verönd við bakhlið eru úr timbri (lerki) og er skjólveggur á milli húsa. Stéttir og bílastæði við aðkomuhlið íbúða eru hellulögn og snjóbræðsla er í gangstéttum.
Nánari upplýsingar veita:
Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is
Húsið (17B) er staðsett í Grænubyggð sem er fjölskylduvænt hverfi í mikilli uppbyggingu. Frekari upplýsingar um hverfið má finna hér http://www.graenabyggd.is
ATH. Myndir í auglýsingu sem sýna innbú voru búnar til með hjálp gervigreindar, það er gert einungis til að gefa hugmyndir að fullbúnu rými, hlutföll og fleiri hlutir geta hliðrast til og ber því að taka þessum myndum með fyrirvara, upprunalegu myndirnar eru einnig til staðar.
Kaupandi greiðir 0,3% af væntanlegu brunabótamáti þegar það verður lagt á íbúðina.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.