** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 71,7 m2 3ja herbergja íbúð, merkt 01-0204, í nýju lyftuhúsi við Tjarnabraut 10 í Innri Njarðvík. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Svalir í suðurátt. Eignin afhendist fullbúin með gólfefnum við kaupsamning.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing:Forstofa er með parketi á gólfi.
Stofa og eldhús í opnu rými með parketi á gólfi. Eldhúsinnrétting er með blástursofni, helluborði, viftu og vaski. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Úr stofu er gengið út
svalir í suðurátt.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni, baðinnréttingu, handklæðaofn, sturtu með sturtugleri. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er er í sameign.
Á jarðhæð er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Annað:Tjarnabraut 10 er 3ja hæða fjölbýlishús með 15 íbúðum ásamt hjóla- og vagnageymslu byggt árið 2023. Húsið er staðsteypt og einangrað að utan og kætt með klæðningu frá Límtré vírnet. Gert er ráð fyrir 26 bílastæðum. Allir gluggar eru verksmiðjuframleiddir úr timbri og glerjaðir með tvöföldu K-gleri. Húsið er loftað með náttúrulegri loftræstingu opnun glugga og hurða. Í aflokuðum gluggalausum rýmum og eldhúsum verður vélknúín loftræsting. Húsið er upphitað með hefðbundnu ofnakerfi. Íbúðir skilast fullfrágengnar að innan sem utan. Að innan eru allar íbúðir með innréttingum og heimilistækjum frá Ikea. Harðparket og flísar á gólfum frá Parka. Fataskápar í herbergjum eru hvítir. Innihurðir eru hvítar. Um er að ræða sérlega fjölskylduvænt hverfi. Stutt er í bæði skóla og leikskóla. Falleg náttúra er allt um kring og stutt í ýmiskonar útivistarmöguleika. Fallegar göngu- og hjólaleiðir eru frá íbúðunum og stutt í alla þjónustu. Stutt er að keyra inn á Reykjanesbraut. Samgöngur til og frá svæðinu er því mjög auðveldar.
Verð kr. 61.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.